Viðskipti innlent

Sveitarfélög urðu af allt að 409 milljónum

Samúel Karl Ólason skrifar
780 landverkamenn töpuðu 860 til 1.870 milljónum.
780 landverkamenn töpuðu 860 til 1.870 milljónum. Vísir/Óskar
Sjómenn og landverkafólk tapaði 990 til 2.550 milljónum króna vegna innflutningsbanns Rússa gagnvart Íslandi. Alls er talið að 440 sjómenn hafi tapað um 440 til 1.000 milljónum og að 780 landverkamenn hafi tapað 860 til 1.870 milljónum.

Þetta kemur fram í skýrslu sem Byggðastofnun vann fyrir Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, um byggðaleg áhrif innflutningsbanns Rússa.

Þau sveitarfélög sem urðu fyrir miklum áhrifum vegna bannsins eru: Þórshöfn, Raufarhöfn, Vopnafjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður, Höfn, Vestmannaeyjar, Snæfellsbær og Garður. Tap sveitarfélaga vegna lægra útsvars eru metnar á bilinu 143 til 364 milljónir króna. Þá eru töpuð aflagjöld hafna metin á bilinu 13 til 43 milljónir.

Háð ýmsum fyrirvörum

Ýmsir fyrirvarar fylgja skýrslunni. Aðeins er horft til uppsjávarafurða og er horft til þess magns sem veiddist í júní í fyrra, en ekki núna í júní.

Miðað er við þrjár sviðsmyndir í skýrslunni. Sú fyrsta er að 30 prósent af þeim afurðum sem áður voru seldar til Rússlands fari í bræðslu, en 70 prósent á nýja markaði. Önnur er að þær afurðir sem voru seldar til Rússlands skiptist í helminga varðandi bræðslu og nýja markaði. Sú síðasta er að 70 prósent fari í bræðslu og 30 prósent á nýja markaði.

Segja ekki upp starfsfólki

Forsvarsmenn fyrirtækja eru sagðir gera almennt ekki ráð fyrir því að segja upp fólki. Hins vegar mun ekki koma til ráðninga vegna vaktavinnu við frystingu makríls og loðnu. Í skýrslunni segir að sú frysting hafi víða verið búbót.

Skýrsluna má sjá hér á vef Atvinnuvegaráðuneytisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×