Körfubolti

Áttum aftur möguleika að vinna gegn Ítalíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Strákarnir ganga hér frá varamannabekknum eftir leikhlé.
Strákarnir ganga hér frá varamannabekknum eftir leikhlé. Vísir/valli
„Ég er mjög stoltur af því hvernig við komum inn í þennan leik. Við eyddum svo mikilli orku í leikinn í gær og það var rosalega svekkjandi að tapa þeim leik," sagði Jón Arnór Stefánsson eftir naumt tap á móti Ítölum á Evróumótinu í gær. Ítalir unnu leikinn 71-64 en aðeins þremur mínútum fyrir leikslok var staðan 62-59 fyrir Ísland.

Daginn eftir að íslenska liðið kom mörgum á óvart með því að vera nálægt því að stela sigri af heimamönnum í Þýskalandi þá var liðið í leik allan tímann á móti Ítölum í gær. Íslenska liðið átti marga frábæra leikkafla og komst yfir í öllum leikhlutunum.

„Maður þarf að berjast við að rífa sig upp aftur en við gerðum það í dag. Það voru fleiri sem stigu upp í dag. Flestir fyrir utan mig spiluðu bara rosalega vel," sagði Jón Arnór harður við sjálfan sig en hann opnaði fyrir restina af liðinu þar sem Ítalarnir lögðu ofurkapp á að stoppa hann.

„Ég átti eiginlega ekki möguleika í dag. Við vorum bara góðir og áttum aftur möguleika á að vinna leikinn," sagði Jón Arnór.

Okkur  vantar eitthvað smá í viðbót

Íslenska liðið hefur átti möguleika á sigri í tveimur leikjum í röð en strákarnir hafa verið örlítið úrræðalausir á móti hávöxnum og einbeittum vörnum mótherjanna á lokamínútum beggja leikja.

„Okkur vantar eitthvað smá í viðbót til þess að klára þessa leiki sem er bara mjög eðlilegt. Þetta er allt nýtt fyrir okkur og við erum að spila á móti sterkum þjóðum sem hafa gert þetta allt áður. Það var því smá ringulreið í lokin því við fengum opin skot sem við nýttum ekki. Við hefðum líka getað fengið einhverja dóma í lokin fannst mér en við erum bara ógeðslega svekktir að hafa tapað þessum leik," sagði Jón Arnór.

Jón Arnór hitti aðeins úr 4 af 16 skotum sínum í leiknum og viðurkenndir að hafa verið með þreyttar lappir þrátt fyrir að hausinn væri klár.

„Ég komst í gegnum þetta á lífi og það er bara jákvætt. Það er gaman að taka þátt í þessu. Ég reyndi mitt besta eins og alltaf en strákarnir eiga mikið skilið því mér fannst þeir draga vagninn allan leikinn," sagði Jón Arnór.

Aldrei upplifað slíkan stuðning áður

Íslenska liðið hefur stimplað sig vel inn í sitt fyrsta Evrópumót þótt að báðir leikirnir hafi tapast.

„Við erum hérna, við erum á staðnum. Við erum mættir á þetta mót til að stríða þessum þjóðum og koma öllum á óvart. Við erum heldur betur að gera það. Það má taka það jákvætt frá þessum leik þó að maður sé drullusvekktur að hafa tapað," sagði Jón Arnór.

Íslenska liðið var nálægt sigri á gólfinu en Ísland burstaði hinsvegar baráttuna um stúkuna. "Ég vil nota tækifærið og þakka þessum Íslendingum sem eru komnir hingað til að styðja okkur. Við strákarnir vorum bara klökkir eftir leikinn og það er ótrúlega gaman að sjá hvað margir mættu hingað til Berlínar," segir Jón og íslenska hjartað sló örar við að horfa upp á fagurbláa stúkuna sem öskrar öll sem ein: „Áfram Ísland."

„Þeir gefa okkur eitthvað extra. Ég hef aldrei upplifað svona áður. Þetta er alveg risastórt fyrir okkur og gefur þennan aukakraft sem við þurfum. Það er rosalega mikilvægt fyrir okkur," sagði Jón Arnór að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×