Afkoma þriggja stærstu sveitarfélaga versnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. september 2015 17:33 Afkoma Reykjavikurborgar er þremur milljörðum lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Afkoma stærstu sveitarfélaga landsins, það er Reykjavikurborgar, Hafnafjarðar og Kópavogs, virðist nú fara versnandi. Greiningadeild Arion banka bendir á að uppgjör síðasta árs og nýlegar tölur um afkomu þriggja stærstu sveitarfélaga landsins beri þess glöggt vitni. Greiningadeild bendir á að í þessum uppgjörum hafi versnandi afkoma komið skýrt í ljós, gjöld hafi vaxið umfram tekjur og rekstrarniðurstaða verið lakari en á sama tímabili í fyrra og jafnvel lakari en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir. Greiningadeild bendir á að launakostnaður vegi þyngst í auknum útgjöldum. Í tilviki Kópavogsbæjar hafi launakostnaður til að mynda aukist um rúm 14% á fyrri hluta ársins samanborið við sama tímabil 2014 á meðan tekjur sveitarfélagsins jukust um 5%. Laun og launatengd gjöld eru um helmingur af heildarrekstrarkostnaði sveitarfélaga á Íslandi. Greiningadeild segir að versnandi afkoma komi alls ekki á óvart og sé í raun framhald af þróun síðastliðins árs þar sem veruleg sveifla hafi orðið til hins verra í afkomu íslenskra sveitarfélaga eftir mikinn rekstrarbata árin þar á undan.
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira