Formúla 1

Rosberg skilur ekki hraða Hamilton

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg virðist vera búinn að týna taktinum í tímatökum.
Rosberg virðist vera búinn að týna taktinum í tímatökum. Vísir/Getty
Nico Rosberg ökumaður Mercedes er gáttaður á hraða liðsfélaga síns, Lewis Hamilton í tímatökum. Rosberg náði flestum ráspólum síðasta árs. Nú er sagan önnur.

Tímatökur voru sterkasta hlið Rosberg í fyrra. Hann náði 11 ráspólum í fyrra en Hamilton sjö. Taflið hefur algjörlega snúist við.

„Ég hef einblínt á að bæta árangur minn í keppnum og það getur útskýrt stöðuna að litlu leyti, hún er að mestu leyti óútskýranleg frá mínu sjónarhorni,“ sagði Rosberg.

„Ég skil ekki þennan mikla mun og það angrar mig, en ég er næstum kominn yfir það. Þetta dregur mig ekki niður - svona er þetta bara, svo lengi sem keppnishraðinn minn er góður get ég snúið stöðunni við,“ bætti hann við.

Áætlun Rosberg um að einblína á keppnishraða er sennilega ekki alveg að skila tilætluðum árangri. Hann vantar enn eina unna keppni til að vera á sama stað og hann var á þessum tíma árs í fyrra, Hamilton er hins vegar með fimm unnar keppnir. Það er jafn mikið og hann var með á þessum tíma í fyrra.

Athygli Rosberg er nú öll á belgíska kappakstrinum, sem er næstur á keppnisdagatalinu. Þar munu nýjar reglur um ræsingu taka gildi. Þær munu flækja ræsinguna að mati Rosberg.

„Við höfum verið að æfa svona ræsingar. Aðferðin er sú sama, en þú þarft að bregðast meira við aðstæðum vegna þess að tengipunkturinn mun ekki vera á fullkomnum stað ef allt er ekki rétt stillt. Kúplingin er bara stillt á ákveðinn hátt og þú þarft bara að glíma við það. Það verður afar flókið,“ sagði Rosberg að lokum.

Rosberg hefur einu sinni náð ráspól í ár á móti níu skiptum Hamilton. Tíu keppnir hafa farið fram. Yfirburðir Hamilton eru því miklir hingað til.


Tengdar fréttir

Bottas: Ferrari-orðrómur truflar

Valtteri Bottas segir vangaveltur um mögulega framtíð hans hjá Ferrari trufla. Hann einbeitir sér að því að vinna sína fyrstu keppni með Williams.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×