Glamour

Stella McCartney hannar bresku búninga fyrir Olympíuleikana 2016

Ritstjórn skrifar
Stella McCartney hannaði einnig búninga breska liðsins fyrir London 2012.
Stella McCartney hannaði einnig búninga breska liðsins fyrir London 2012. Glamour/Getty
Fatahönnuðurinn Stella McCartney sér um að hanna búninga breska liðsins á Olympíuleikunum í Ríó 2016. 

Þetta er í annað sinn sem Stella hannar búninga breska liðsins en hún sá einnig um að klæða íþróttafólkið á leikunum í London 2012. Adidas sér um að framleiðslu. 

Búningarnir verða frumsýndir í Apríl á næsta ári en Stella hefur fengið afreksfólkið sem mun klæðast búningunum til að aðstoða sig í hönnunarferlinu. Það er því nokkuð öruggt að breska liðip verður með best klæddu liðunum í Ríó. 



Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - ekki gleyma að tryggja þér eintak!


Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook.






×