Heilsa

WOW Cyclothon í fullum gangi

Samúel Karl Ólason skrifar
WOW Cyclothon er stórt batterí.
WOW Cyclothon er stórt batterí. Mynd/Kristinn Magnússon
Þjóðverjinn Matthias Ebert er nú fremstur í flokki í einstaklingskeppninni í WOW Cyclothon. Matthias var kominn á Egilsstaði skömmu fyrir sex og ætlaði að leggja sig í um hálftíma. Allt í allt hefur hann sofið um klukkutíma síðan keppnin hófst.

Samkvæmt tilkynningu frá WOW er Eiríkur Ingi Jóhannesson í öðru sæti og hefur hann ekkert sofið síðan keppnin hófst. Fremsta kvennaliðið er HFR Renault en þær eru komnar fram hjá Egilsstöðum.

Hér má horfa á beina útsendingu frá hjólreiðakeppninni.

Keppnin er nú haldin í fjórða sinn og eru keppendur yfir þúsund talsins í 116 liðum. Í keppninni verður hjólað með boðsveitarformi hringinn í kringum Ísland, um Hvalfjörð og yfir Öxi á innan við 72 tímum.

Hér má fylgjast með keppendum í rauntíma á stóru Íslandskorti.

Einstaklingar:

1. Matthias Ebert @ Egilsstaðir

2. Eiríkur Ingi Jóhannesson

3. Roberto Martini

4. Árni Víðir Alfreðsson

A-Flokkur: Lagðir af stað frá Djúpavogi

1. ERGO

2. Team Cube

3. TEAM SSGÓLF

4. Átján Bláir

B-Flokkur: Lagðir af stað frá Djúpavogi

1. HFR ungliðar

2. Örninn TREK

3. Tindur B

4. Team Skoda / Umfus

Lið Hjólakrafts eru að nálgast Skaftafell. Ríflega 10 milljónir króna hafa safnast.

Hér fyrir neðan má sjá samantekt úr útsendingu Stöðvar 2 Sport frá fyrsta sólarhring keppninnar.


Tengdar fréttir

Bein útsending: WOW Cyclothon 2015

WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin er orðinn stærsti einstaki hjólreiðaviðburður á Íslandi en fjöldi þátttakenda í ár hefur meira en tvöfaldast frá því í fyrra.

Fylgstu með teyminu á Twitter

Teymi Vísis og Stöðvar 2 Sport er komið með Twitter-aðgang til að greina frá því hvernig gangi í hringferðinni um landið.

Búast við fyrstu keppendum í mark í fyrramálið

Benedikt Ingi Tómasson, verkefnastjóri WOW Cyclothon, hefur gert vandaða tímatöflu sem sýnir um það bil hvenær keppendur koma í mark miðað við hversu hratt þeir hjóla í keppninni.

MP-banki safnað mest í WOW Cyclothon

WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin stendur nú yfir og taka 116 lið þátt. Fjöldi þátttakenda í ár hefur meira en tvöfaldast frá því í fyrra. MP-banki hefur safnað mest í áheitasöfnunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×