EVE: Valkyrie er geimleikur þar sem spilaður er með sýndarveruleikabúnaði. Ráðgert er að hann komi út á fyrsta fjórðungi næsta árs. Hver erlendi miðillinn á fætur öðrum hefur fjallað um leikinn á E3 og virðast þeir allir vera sammála um að hann líti stórvel út.
Á vefnum Shacknews segir til dæmis að ef einhver leikur eigi eftir að skilgreina þá sýndarveruleikatíma sem við stefnum á, sé það EVE: Valkyrie. Þar að auki segir blaðamaður ExtremeTech að EVE: Valkyrie hafi sannfært hann um kosti sýndarveruleika.
Sömuleiðis segir blaðamaður Gizmodo að EVE: Valkyrie sé fremstur meðal þeirra leikja sem verið er að þróa fyrir sýndarveruleika.
Fyrir tæpri viku síðan sagði Wired frá því að greiningaraðilar geri ráð fyrir því að markaðurinn fyrir sýndarveruleika verði orðinn gríðarlega stór strax á næsta ári. Fyrirtæki eins og Facebook, Microsoft og Sony hafa fjárfest miklar upphæðir í þróun tækninnar á síðustu árum.