Vilja álver vegna jákvæðra áhrifa á Grundartanga og Reyðarfirði Kristján Már Unnarsson skrifar 12. júní 2015 19:30
Hafinn er undirbúningur álvers á Norðurlandi vestra, milli Blönduóss og Skagastrandar. Álverið yrði í meirihlutaeigu íslenskra aðila en reist í samstarfi við kínverskt fyrirtæki. Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa undirritað samstarfssamning um álverið sem fyrirhugað er að rísi á iðnaðarsvæði við Hafursstaði, skammt sunnan Skagastrandar. Íslenskt félag, Klappir Development, undirbýr þar 120 þúsund tonna álver en orkuþörf þess yrði 206 megavött. Í sameiginlegri yfirlýsingu sveitarfélaganna og Klappa kemur fram að reiknað sé með því að orkan komi frá Blönduvirkjun í samræmi við vilja og samkomulag heimamanna og stjórnvalda þegar virkjunin var byggð. Tímasetning á afhendingu orkunnar er þó háð því að búið verði að virkja annarsstaðar fyrir núverandi viðskiptavini Blönduvirkjunar.Bæði Sauðárkrókur og Blönduós yrðu innan atvinnusvæðis álversins og þar er gert ráð fyrir 240 varanlegum störfum. Í yfirlýsingu samstarfsaðilanna segir að horft sé til þeirra jákvæðu samfélagslegu áhrifa sem fylgt hafi stóriðju á Grundartanga og á Reyðarfirði. Ráðist yrði í gerð stórskipahafnar við Hafursstaði auk uppbyggingar annarra innviða á Norðvesturlandi. Áætlað er að fjárhagslegri og tæknilegri úttekt á verkefninu ljúki fyrir lok þessa árs.
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira