Glamour

Opnar sig um óléttuna og Bruce Jenner

Ritstjórn skrifar
"Þetta er búið að vera rússíbanareið," segir Kardashian í forsíðuviðtali við bandaríska Glamour.
"Þetta er búið að vera rússíbanareið," segir Kardashian í forsíðuviðtali við bandaríska Glamour.
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur verið eldlínu miðlanna í dag eftir að upp komst að hún á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum Kanye West. 

Kardashian hefur löngum sýnt að hún kann að koma sér á framfæri en í dag frumsýndi bandaríska Glamour forsíðu júlí-tölublaðsins en hana prýðir engin önnur en Kim Kardashian þar sem hún opnar sig um óléttuna og stjúpföður sinn Bruce Jenner. 



Myndirnar af Kardashian tók Patrick Demarchelier en þetta er í annað sinn sem Kardashian er á forsíðu Glamour. 

Í viðtalinu við Glamour opnar Kardashian sig um erfiðleikana sem hún þurfti að kljást við er hún reyndi að verða ólétt í þetta sinn, en hún á fyrir dótturina North West sem verður tveggja ára í þessum mánuði. 

"Ég bjóst aldrei við því að ætla að verða svona opin um mín vandamál að verða ólétt í raunveruleikaþættinum en mér snerist hugur eftir að hafa hitti allt þetta yndislega fólk hjá lækninum sem var að ganga í gegnum nákvæmlega sama ferli og ég. Afhverju ætti ég ekki að deila minni sögu?"

Einnig talar hún um kynleiðréttingarferli stjúpföður síns Bruce Jenner.  

Fylgstu með Glamour á Facebook og á Instagram.








×