Fjármálaeftirlitið skoðar stærstu lán bankanna ingvar haraldsson skrifar 11. maí 2015 15:29 Fjármálaeftirlitið gagnrýndi Íslandsbanka fyrir að senda ófullnægjandi gögn þegar þeirra var óskað. vísir/vilhelm
Fjármálaeftirlitið hefur kannað stærstu ný útlán Íslandsbanka, Landsbankans og MP banka árið 2014. Könnun fór þannig fram að Fjármálaeftirlitið fékk lista yfir öll útlán bankanna þriggja sem voru yfir 100 milljónum króna á síðasta ári og valdi nokkur lán til nánari skoðunar. Alvarlegasta athugasemdin var gerð vegna þess að lán Íslandsbanka var veitt þrátt fyrir að áreiðanleikakönnun hafi ekki verið í samræmi við starfsreglur bankans. Fjármálaeftirlitið fór fram á að bankinn framkvæmdi að nýju áreiðanleikakönnun fyrir lögaðilann og sendi eftirlitinu afrit. Fjármálaeftirlitið gerði athugasemd við að Íslandsbanki sendi eftirlitinu ófullnægjandi gögn í kjölfar gagnabeiðni Fjármálaeftirlitsins. Fjármálaeftirlitið kannaði einnig tvö lán til viðbótar hjá Íslandsbanka sem reyndust vera í samræmi við lánareglur bankans. Öll lánin voru yfir einum milljarði króna. Hjá Landsbankanum kannaði Fjármálaeftirlitið frekar lánveitingar til þriggja aðila sem námu samtals 1,9 milljarði króna til nánari skoðunar. Eftirlitið gerði athugasemd við að bankinn hefði ekki farið eftir eigin verklagsreglu varðandi mat á lánshæfi eins viðskiptavinar bankans. Fjármálaeftirlitið kannaði einnig tvö lán hjá MP banka sem samtals námu 900 milljónum króna. Lánin þóttu vera í samræmi við lánareglur bankans. Þó var gerð athugasemd við að ákvörðun stjórnar bankans um að samþykkja lánsbeiðni milli funda hefði ekki komið skýrt fram í næstu fundargerð hennar en um var að ræða lán sem stjórn bankans bar að veita samþykki fyrir samkvæmt útlánareglum bankans.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira