Már segir grunnrekstur bankanna veikan ingvar haraldsson skrifar 22. apríl 2015 14:06 Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundi þar sem Fjármálastöðugleiki var kynntur í morgun. vísir/gva
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að grunnrekstur þriggja stóru bankanna hér á landi sé fremur veikur þegar horft sé framhjá tímabundnum tekjum vegna uppfærslu eigna og annarra einskiptisliða. Þetta kemur fram í formála Más í ritinu Fjármálastöðugleiki sem kom út í dag. Már varar við að verði ekki breyting þar á gæti slakur grunnrekstur veikt efnahagsreikninga bankanna og grafið undan viðnámsþrótti þeirra á næstu árum. Seðlabankastjórinn bendir einnig á að fjármögnun bankanna sé að hluta til varin vegna gjaldeyrishaftanna. Því sé mikilvægt að að fara varlega í að greiða arð út úr bönkunum. Hagnaður af grunnrekstri milli 23 og 33 milljarðar Í Fjármálatíðindum kemur fram að arðsemi heildareina bankanna hafi verið 2,7 prósent sem sé aukning milli ára. Arðsemin er há í norrænum samanburði en algengt er að arðsemi norrænna banka sé á milli 0,4-0,8 prósent. Þá kemur einnig fram að eiginfjárhlutfall bankanna hafi hækkað milli ára og sé nú 28,5 prósent sem sé nokkuð umfram lámarkskröfu Fjármálaeftirlitsins. Samanlagður bankanna þriggja var 80 milljarðar á síðasta ári. Sé bara horft á grunnrekstur bankanna blasir önnur mynd við. Samanlagður hagnaður bankanna af grunnrekstri var milli 23 og 33 milljarðar samkvæmt sviðsmyndum sem dregnar eru upp í Fjármálatíðindum. Miðað við þessar sviðsmyndir er arðsemi heildareigna milli 0,8 og 1,1 prósent sem er mun nær því sem reyndin hefur verið á Norðurlöndunum. Grunnreksturinn batnar þó milli ára með hærri þóknunartekna og hækkun hreinna vaxtatekna.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira