Viðskipti innlent

GAMMA hagnast um 258 milljónir

ingvar haraldsson skrifar
Gísli Hauksson, forstjóri Gamma.
Gísli Hauksson, forstjóri Gamma. vísir/gva
Fjármálafyrirtækið GAMMA hagnaðist um 258 milljónir á síðasta ári. Stjórn félagsins leggur til að þar af greiði GAMMA 160 milljónir í arð.

Tekjur GAMMA á síðasta ári námu 814 milljónum, þar vega þyngst umsýslu- og árangurstengdar þóknanir sem námu 648 milljónum og jukust um nærri 200 milljónir milli ára. Fjármunatekjur hækkuðu einnig verulega milli ára og námu 76 milljónum árið 2013 en voru 164 milljónum í fyrra.

Þá námu rekstargjöld 467 miljónum og hækka um 120 milljónir milli ára.

Eignir félagsins nema einum milljarði, eigið fé þess er 666 milljónir og skuldir 363 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×