Hálfdan ráðinn forstjóri Parlogis Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. apríl 2015 16:34 Hálfdan Gunnarsson.
Hálfdan Gunnarsson hefur verið ráðinn forstjóri þjónustufyrirtækisins Parlogis ehf. Hann tekur við starfinu af Guðnýju Rósu Þorvarðardóttur sem lætur af störfum að eigin ósk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Hálfdan er véla- og iðnaðarverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka rekstrar- og vörustjórnunarreynslu. Hálfdan var einn af stofnendum AGR ehf. og stýrði uppbyggingu þess bæði á Íslandi og erlendis á árunum 1998 – 2007 auk þess að sinna stundakennslu við Háskólann í Reykjavík um nokkurra ára skeið. Þá starfaði hann í fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings og Arion banka frá 2007–2009. Frá árinu 2009 hefur Hálfdan starfað sem forstöðumaður innkaupa- og rekstrarþjónustu Orkuveitu Reykjavíkur. Hálfdan er giftur Þórhildi Ólafsdóttur og eiga þau fjögur börn. Hálfdan segir mjög spennandi að taka við rekstri Parlogis á þessum tímapunkti. „Fyrirtækið býr yfir afar góðum innviðum til að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu í vörustjórnun og gera þeim kleift að einbeita sér að markaðs- og sölumálum. Ég hlakka til að vinna með öflugum stjórnendum og samstarfsfólki við að efla þjónustuframboðið og nýta vaxtartækifæri sem eru til staðar,“ segir Hálfdan. Jóhann Ingi Kristjánsson, stjórnarformaður Parlogis, segir þá reynslu og þekkingu sem Hálfdan hafi muni nýtast fyrirtækinu á spennandi tímum. „Parlogis hefur sterka stöðu á markaði, býr að góðum viðskiptavinum til langs tíma og frábæru starfsfólki. Fyrir hönd stjórnarinnar þakka ég Guðnýju Rósu fyrir farsæl störf hennar í þágu Parlogis undanfarin 10 ár. Fyritækið hefur sótt inn á nýja markaði og vaxið undir hennar stjórn.“
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira