Viðskipti innlent

Sparisjóður Norðfjarðar verður Sparisjóður Austurlands

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Norðfirði.
Frá Norðfirði. Vísir/Pjetur
Á aðalfundi Sparisjóðs Norðfjarðar, sem fram fór í kvöld, var samþykkt tillaga stjórnar um breytingu á félagsformi sjóðsins í hlutafélag. Tillagan felur í sér að sparisjóðnum verður slitið og stofnfjáreigendur eignast hlutabréf í Sparisjóði Austurlands hf.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu vegna fundarins. Sparisjóður Austurlands mun taka við öllum réttindum og skyldum Sparisjóðs Norðfjarðar miðað við 1. janúar 2015.

„Tilgangur breytinganna er að styðja við áframhaldandi vöxt og uppbyggingu Sparisjóðsins,“ segir í tilkynningunni. „Með nafnabreytingu vill Sparisjóðurinn undirstrika að aðalstarfssvæði sjóðsins er allt austurland og vill sjóðurinn styrkja markaðshlutdeild sína á þessu svæði.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×