Tuttugu milljarðar nettengdra tækja Samúel Karl Ólason skrifar 16. apríl 2015 16:30 „Nettengd tæki verða áður en langt um líður orðin fleiri en tölvur og snjalltæki, sem við höfum notað til þess að tengjast netinu hingað til.“ Vísir/EPA
Snæbjörn Ingólfsson, sérfræðingur hjá Nýherja, segir að árið 2020 verði rúmlega tuttugu milljarðar tækja tengd internetinu. Þetta kom fram í máli Snæbjarnar á Tæknifæri, ráðstefnu Nýherja á Akureyri sem stendur yfir í dag. hann segir að nú þegar hafi fyrsta kynslóð slíkra tækja litið dagsins ljós og bendir á snjallúr og heilsubönd. Í tilkynningu segir að úrvalið muni aukast hratt og verðið á tækjum þessum muni lækka. Áður en yfir líður muni tæknin ná yfir stærri þætti í daglegu lífi fólks. Bæði í vinnu og einkalífi. Kaffivélar, ísskápar og bílar eru meðal tækja sem eru orðin eða verða nettengd. „Nettengd tæki verða áður en langt um líður orðin fleiri en tölvur og snjalltæki, sem við höfum notað til þess að tengjast netinu hingað til. Þessi bylting, sem nefnd hefur verið „Internet of Things", mun ná til heilsu fólks, öryggi ýmis konar á heimilum og í borgum, fjármála og daglegrar skipulagningar fólks. Megin ávinningur þessarar tækni er aukin skilvirkni og lægri kostnaður á heimilum, vinnustöðum og samfélögum. Því er spáð að þessi þróun verði með sambærilegum hætti og snjalltækjavæðingin, en á fáeinum árum fjölgaði snjalltækjum úr 170 milljónum í einn milljarð tækja," segir Snæbjörn. Hann bendir einnig á að Asíuríki séu nú í fararbroddi í netvæðingu tækja. „Það er einkum fyrirtæki sem draga vagninn en gert er ráð fyrir að heimili og svo opinberir aðilar muni taka við kyndlinum. Þegar heimilin taka við sér þá mun skapast gríðarlegt magn af gögnum. Greiningaraðilum eins og Gartner og McKinsey, ber reyndar ekki alveg saman um fjölda nettengdra tækja á næstu árum en það má slá því föstu að þau verði rúmlega 20 milljarðar árið 2020. Það sem helst stendur þessari byltingu fyrir þrifum er sameiginlegur staðall og enn eru öryggismálin óljós."
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira