Viðskipti innlent

Zymetech hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands

ingvar haraldsson skrifar
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra afhenti Ágústu Guðmundsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands og rannsóknastjóra Zymetech, verðlaunin á Grand hótel í morgun.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra afhenti Ágústu Guðmundsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands og rannsóknastjóra Zymetech, verðlaunin á Grand hótel í morgun.
Líftæknifyrirtækið Zymetech hlaut í morgun Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2015.

Zymetech er íslenskt líftæknifyrirtæki sem vinnur að rannsóknum, þróun, framleiðslu og sölu náttúrulegra sjávarensíma til hagnýtingar í húðvörur, lækningatæki og lyf.  Zymetech nýtir meltingarensím úr Norður-Atlantshafsþorski og hefur tekist að skapa verðmæta viðbótarafurð úr hráefni sem í gegnum tíðina hefur að langmestu leyti verið fargað. Í tilkynningu segir að með þessu hefur fyrirtækið þróað afurð sem margfaldar virði þorsksins.

Zymetech framleiðir margs konar húð- og snyrtivörur sem seldar eru undir ýmsum vörumerkjum samstarfsaðila fyrirtækisins, auk Pensim áburðarins sem er sennilega þekktasta vara þeirra hér á landi.

Fyrirtækið vinnur nú að þróun lækningavara til meðhöndlunar á sértækum húðkvillum á borð við bólgur, útbrot, sprungna húð og til sáragræðinga. Nýjasta afurð Zymetech er lækningavaran PreCold, munnúði til varnar kvefi. Klínískar rannsóknir eru sagðar benda til þess að fækka megi veikindadögum af völdum kvefs um allt að helming ef munnúðinn er notaður reglulega meðan einkenni kvefsins vara eða sem fyrirbyggjandi.

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×