Seðlabankastjórum verði fjölgað í þrjá Stefán Árni Pálsson skrifar 20. mars 2015 16:37 Már Guðmundsson var endurskipaður seðlabankastjóri til fimm ára í ágúst á síðasta ári. mynd/daníel
Nefnd undir stjórn Þráins Eggertssonar hagfræðings telur skynsamlegt að fjölga seðlabankastjórum úr einum í þrjá. Fjármála- og efnahagsráðuneytið gerði tillögur nefndarinnar opinberar í dag. Nefndin leggur til að bankastjórn Seðlabankans verði fjölskipuð þar sem seðlabankastjóri er fremstur á meðal jafninga. Í stað núverandi aðstoðarseðlabankastjóra komi tveir bankastjórar sem taka sæti í bankastjórn ásamt seðlabankastjóra sem er formaður bankastjórnar, leiðir starfsemi bankans, er talsmaður hans og kemur fram fyrir hönd bankastjórnar. Að öðru leyti muni bankastjórn skipta með sér verkum innan bankans, þar með talið hvaða bankastjóri skuli fara sérstaklega með peningamál, hver skuli fara sérstaklega með fjármálastöðugleika og hver skuli vera staðgengill seðlabankastjóra í fjarveru hans. Nefndin var skipuð í fyrra, hefur skilað fjármála- og efnahagsráðherra áfangaskýrslu en þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Nefndinni var falið það verkefni að skila fjármála- og efnahagsráðherra frumvarpi til nýrra laga um Seðlabanka Íslands. Jafnframt átti nefndin að gaumgæfa þróun á starfsemi annarra seðlabanka og löggjöf á sviði peningamála og efnahagsstjórnunar með það að markmiði að treysta trúverðugleika og sjálfstæði bankans og traust á íslenskum efnahagsmálum. Ennfremur var nefndinni falið að skoða hvort ástæða sé til breytinga á skipulagi fjármálamarkaðar og Fjármálaeftirlitsins í því skyni að efla samstarf og skýra verkaskiptingu milli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Í nefndinni sitja dr. Þráinn Eggertsson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, formaður, og dr. Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík. Meðfylgjandi er skilabréf nefndarinnar, frumvarpstillögur og lög um Seðlabanka Íslands með innfærðum breytingatillögum nefndarinnar. Fjármála- og efnahagsráðuneytið mun á næstunni fara yfir skýrslu og tillögur nefndarinnar.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira