Viðskipti innlent

Game of Thrones sýndir í 170 löndum samtímis

Samúel Karl Ólason skrifar
Game of Thrones eru gífurlega vinsælir þættir.
Game of Thrones eru gífurlega vinsælir þættir. Mynd/HBO
Allir tíu þættir fimmtu þáttaraðar af Game of Thrones þáttunum vinsælu, verða frumsýndir samtímis í yfir 170 löndum og þar með talið Íslandi. Game of Thrones er vinsælasta þáttaröðin sem HBO hefur framleitt, hingað til, og hafa þættirnir ávallt fengið mikið áhorf og verið vel tekið þar sem þeir hafa verið sýndir.

Til þessa hefur samstilling á frumsýningum á leiknum sjónvarpsþáttum ekki náð til Íslands en með tilkomu samnings Stöðvar 2 og HBO er hægt að gera þetta að veruleika. Ekki er vitað til þess að nein íslensk sjónvarpsstöð hafi náð þessum áfanga áður með leikna bandaríska sjónvarpsþætti.

„Við erum hæst ánægðir með að sjá alþjóðlega samstarfsfélaga okkar færa Game of Thrones, eina ástsælustu sjónvarpsseríu heimsins, til áhorfenda um allan heim. Á sama tíma og þættirnir eru sýndir á HBO í Bandaríkjunum,“ segir Michael Lombardo, forseti HBO, við vefinn Superhype.

Game of Thrones hefst 13. apríl n.k. og verða þættirnir sýndir klukkan 01:00, aðfaranótt mánudags og geta því hörðustu aðdáendurnir séð þá á sama tíma og þeir eru frumsýndir í Bandaríkjunum og fjölda annarra landa um heim allan.

Eftir frumsýningu koma þeir strax inn á Stöð 2 Frelsi og geta því áskrifendur sem misstu af þættinum horft á hann þegar þeim hentar. Einnig eru þeir sýndir á mánudagskvöldum eins og áskrifendur Stöðvar 2 þekkja vel frá fyrri þáttaröðum þessara vinsælu þátta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365.

Þeir áskrifendur sem ekki hafa fylgst með þessum vinsælu þáttum frá upphafi geta nú horft á fyrri seríur Game of Thrones á Stöð 2 Maraþon, þegar þeim hentar, eða fylgst með á Gullstöðinni en þeir eru nú endursýndir þar á hverjum degi fram að frumsýningu nýrrar þáttaraðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×