Rekstrartekjur Regins hf. tæplega fimm milljarðar Stefán Árni Pálsson skrifar 25. febrúar 2015 18:12 Helgi S. Gunnarsson er forstjóri Regins fasteignafélags. Vísir/Valli
Rekstrartekjur Regins hf. á árinu 2014 námu 4.765 milljónum króna en þetta kemur fram í tilkynningu frá fasteignafélaginu. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 3.035 m.kr. og bókfært virði fjárfestingareigna í lok árs var 53.637 m.kr. samanborið við 40.122 m.kr. í árslok 2013. Hagnaður eftir tekjuskatt nam 2.229 m.kr. og handbært fé frá rekstri nam 1.672 m.kr. á árinu 2014. Vaxtaberandi skuldir voru 32.861 m.kr. í lok árs 2014 samanborið við 24.837 m.kr. í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall var í lok árs 32,7%. Hagnaður á hlut á árinu 2014 var 1,61 samanborið við 1,87 árið áður. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands, fjöldi hluthafa í árslok 2014 voru 628 samanborið við 619 í árslok 2013. Í tilkynningu frá Reginn segir að afkoma félagsins hafi verið góð og í samræmi við áætlun félagsins. „Rekstrartekjur námu 4.765 m.kr.og þar af námu leigutekjur 4.237 m.kr.. Leigutekjur hafa hækkað um 20% samanborið við árið 2013. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 3.035 m.kr. sem samsvarar 23% hækkun samanborið við árið 2013,“ segir í tilkynningunni. Stjórn félagsins leggur til að ekki verður greiddur arður á árinu 2015. Aðalfundur félagsins verður haldinn 21. apríl nk.Eignasafn Regins samanstendur af fullgerðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Í lok árs 2014 átti Reginn 53 fasteignir. Heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins var 224 þúsund fermetrar. Útleiguhlutfall fasteignasafnsins er um 97% miðað við tekjur. Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings og við matið er stuðst við núvirt framtíðar sjóðsflæði einstakra eigna. Matsbreyting á árinu 2014 var 1.206 m.kr.
Mest lesið „Ekki mistök“ að brauð með engu kostaði tvö þúsund krónur Neytendur Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Viðskipti erlent Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Viðskipti innlent Verðbólgan hjaðnar á ný Viðskipti innlent Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Viðskipti innlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Í vinnutengdri ástarsorg Atvinnulíf Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Viðskipti erlent Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Viðskipti innlent Tekjur jukust um helming milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Erlendir farþegar á bak við 81 prósent tekna Icelandair Auður leiðir nýja samsteypu á íslenskum markaði Virði Icelandair hrapar eftir uppgjör „Við erum alls ekki í nokkru stríði“ Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Sjá meira
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun