Verðlagseftirlit með kassastrimlum Linda Blöndal skrifar 30. janúar 2015 19:30
Nýtt tæki fyrir neytendur til að fylgjast með verðlagi var kynnt í gær og nefnist "Strimillinn". Hafin er söfnun í gagnagrunn á upplýsingum um matarverð og öðrum nauðsynjum. Neytendur geta með þessu sjálfir sinnt verðlagseftirliti. Með snallsímann að vopni tekur fólk mynd af kassastrimlinum og sendir á netfangið móttaka@strimillinn.is sem hugbúnaðarfyrirtæki Loftfarið leggur senn lokahönd á. Núna safnast í gagnagrunn sem verður tilbúinn í vor. Þá mun fólk fá aðgang að sinni eigin innkaupasíðu og geta séð hvar hagstæðast er að kaupa inn.Verðþróun í rauntímaEinnig verður almenn síða opin öllum þar sem fylgst er með þróun verðlags á hundruð vörutegunda og samanburði á verði birtur. Neytendur geta fylgst með verðþróun í rauntíma og sömuleiðist hvort að auglýstur afsláttur verslana sé að skila sér. ASÍ og Neytendastofa safna upplýsingum um verðlag nú þegar en með þessu munu upplýsingar birtast stöðugt um verðið á matvörumarkaði.Vöruupplýsingar flokkaðarMargir eru nú þegar byrjaðir að senda kassastrimla á strimilinn.is. Þjónustan verður að minnsta kosti til að byrja með endurgjaldslaus. Hugbúnaðurinn mun flokka upplýsingarnar á margskonar hátt og fólk getur því með kerfisbundnum hætti nýtt kassastrimlana til að verða vakandi neytendur. Óvéfengjanleg gögn með kassakvittunum„Viðbrögðin hafa verið hreint ótrúleg. Við höfum lítið fjallað um þetta og þetta hálfpartinn lak í fjölmiðla. Og á þessum eina degi höfðu þúsund manns skráð sig inn til að taka þátt í prófunum á vefnum", sagði Hugi Þórðarsson, einn eigandi Loftfarsins í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. „Á hverjum degi munu verða til tugir kílómetra af óvéfengjanlegum verðlagsupplýsingum með kassastrimlum og markmiðið með vefnum er að safna gögn af þessum strimlum og skrá á einn stað", sagði Hugi. Leitarbær gagnagrunnurÞegar fólk sendir kassastrimilinn þá eru upplýsingarnar greindar og verða leitarbær. Hægt verður að slá inn ólíkar tegundir vara sem leitarorð inn á vefunn og fá nýjustu upplýsingar um vöruverð í mismunandi matvöruverslunum og hvað maður hefur keypt áður og á hvaða kjörum.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Fleiri fréttir Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Sjá meira