WOW skoðar stöðu sína gagnvart ríkinu Samúel Karl Ólason skrifar 20. janúar 2015 12:41 Skúli Mogensen, eigandi WOW air. Vísir/Vilhelm
Flugfélagið WOW air skoðar nú stöðu sína varðandi farmiðakaup ríkisstarfsmanna til útlanda. Kostnaður ríkisins vegna farmiðakaupa er um 900 milljónir króna á ári, en enginn samningur hefur verið gerður um slíkt og var síðasta útboð gert árið 2012. Fram kom í Kastljósi í gær að starfsmennirnir sjálfir ráði hjá hvaða flugfélagi þeir bóki far og flestir geri það hjá Icelandair þar sem þeir fá vildarpunkta. Þannig fái til dæmis opinber starfsmaður sem fer til Danmerkur einu sinni í mánuði, mögulega frítt far til London og til baka á ári, vegna vildarpunkta. „Hingað til hefur WOW Air gert sér grein fyrir að það geti sparað ríkinu hundruði milljóna á ári en til þessa hefur félagið ekki horft á málið sem mögulegt lögbrot,“ segir Páll Rúnar Kristjánsson, lögmaður WOW. „Þá hlið þarf einfaldlega að skoða.“ Í Kastljósi í gær kom fram að ítrekaðar tilraunir til að bjóða út farmiðakaup ríkisins hafi runnið út í sandinn árið 2012, en þá hafi tvö útboð verið úrskurðuð ógild. Árið 2011 tók ríkið tilboðum frá bæði Icelandair og Iceland Express, þrátt fyrir að tilboð Iceland Express hafi verið mun hagstæðara samkvæmt Kærunefnd útboðsmála. Páll segir málið vera hálf furðulegt. „Flestir fagna því að græða hundruði milljóna, en ekki ríkið, það berst hatrammlega, að því er virðist, á móti þessum sparnaði. Það er auðvitað sérstakt því þetta er ríkið, sem er treyst fyrir fé okkar allra, og það getur ábyggilega fundið betri farveg fyrir þessa peninga á öðrum vettvangi.“
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira