Sem hnefahögg í andlit aldraðra og öryrkja Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2015 10:46 Kjaranefndin skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka lækkun á niðurgreiðslu á öryggishnöppum. Vísir/Getty „
Ríkisstjórnin hefur hækkað svo mikið komugjöld í heilbrigðiskerfinu og dregið svo mjög úr niðurgreiðslum á nauðsynlegum hjálpartækjum aldraðra, að þær takmörkuðu kjarabætur, sem aldraðir og öryrkjar fengu um sl. áramót hafa verið teknar til baka,“ segir í ályktun kjaranefndar Félags eldri borgara. Í ályktuninni segir að stórlega hafi verið dregið úr niðurgreiðslum á öryggishnöppum með þeim afleiðingum að leiga fyrir afnot af þessum nauðsynlegu öryggistækjum eldri borgara hefur hækkað um 89%. Allar þessar hækkanir séu sem hnefahögg í andlit aldraðra og öryrkja. „Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík ítrekar áskorun sína á heilbrigðisráðherra um að afturkalla hækkanir á komugjöldum í heilbrigðisþjónustu, sem tóku gildi um síðustu áramót svo og áskorun á ráðherra um að afturkalla hækkanir á ýmsum stoðtækjum og hjálpartækjum, sem nauðsynleg eru fyrir aldraða til þess að geta dvalist í heimahúsum í stað þess að fara á hjúkrunarheimili. Komugjöld á heilsugæslustöðum hækkuðu um 20% um sl . áramót og komugjöld til sérfræðinga hækkuðu um 19%. Dregið var svo mikið úr niðurgreiðslum á stoðtækjum og hjálpartækjum, að verð á þeim hefur stórhækkað. Sjúklingar, sem þurfa á bleium að halda, þurfa nú að greiða 4-5000 kr. á mánuði fyrir þær en áður voru þær ókeypis. Kostnaður sjúklings af hjálpartæki vegna kæfisvefns hefur verið hækkaður um 77%. Kjaranefnd skorar á heilbrigðisráðherra að draga til baka lækkun á niðurgreiðslu á öryggishnöppum.“
Tengdar fréttir Breyting á akstri bitnar á eldri borgurum „Þetta bitnar líka á eldri borgurum sem nýta sér þjónustuna, við erum búin að fá mikið af símtölum frá fólki,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara, um ferðaþjónustu fatlaðra. 15. janúar 2015 07:15 Fá ekki vinnu vegna aldurs Kennitalan fælir atvinnurekendur frá því að ráða eldra fólk í vinnu þó það uppfylli allar kröfur. 30. nóvember 2014 13:02 Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Fleiri fréttir Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Sjá meira
Breyting á akstri bitnar á eldri borgurum „Þetta bitnar líka á eldri borgurum sem nýta sér þjónustuna, við erum búin að fá mikið af símtölum frá fólki,“ segir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Félags eldri borgara, um ferðaþjónustu fatlaðra. 15. janúar 2015 07:15
Fá ekki vinnu vegna aldurs Kennitalan fælir atvinnurekendur frá því að ráða eldra fólk í vinnu þó það uppfylli allar kröfur. 30. nóvember 2014 13:02