Harmageddon

Söngvari Stone Roses vitni í kynferðisafbrotamáli

Orri Freyr Rúnarsson skrifar
Ian Brown er þriðji frá vinstri
Ian Brown er þriðji frá vinstri
Stone Roses söngvarinn Ian Brown kom fyrir rétt í gær þar sem hann bar vitni gegn veðurfréttarmanninum Fred Talbot vegna kynferðisbrota. En Talbot þessi er m.a. sakaður um að hafa brotið gegn fimm drengjum á árunum 1960 til 1980 þegar að hann var grunnskólakennari í Bretlandi og var þá Ian Brown nemandi hans. En söngvarinn er þó ekki einn þeirra fimm sem brotið var gegn. Hann kom engu að síður fyrir rétt í gær og bar þar vitni gegn kennaranum. Sagði hann m.a. að kennarinn hafi rætt við þá um sjálfsfróun og hvatt þá til að stunda hana. Þá hafi hann einnig sýnt strákunum klámmynd ætlaða samkynhneigðum á skólatíma.

Hringavitleysan í kringum Blink 182 virðist ætla að halda áfram en fyrrum gítarleikari þeirra og söngvari, Tom Delonge, birti í gær sína útgáfu af málum á samfélagsmiðlun en líkt og kom fram í gær er hann hættur í hljómsveitinni. Að sögn þeirra Mark Hoppus og Travis Barker sendi umboðsmaður Tom Delonge póst á þá þar sem fram kom að söngvarinn hefði ekki áhuga á að vinna með Blink 182 í náinni framtíð og þeir litu í raun þannig á að hann væri einfaldlega hættur. En nú hefur Delonge semsagt birt sína útgáfu af atburðunum. Segist hann hafa lagt allt sitt í hljómsveitina á síðustu árum en fengið lítið til baka frá félögum sínum. Hann segist hafa skipulagt heila helgi þar sem þeir ætluðu að hittast og ræða málin en þeir styttu helgina niður í þrjá klukkutíma í pínulitlu baksviðsherbergi í Vegas. Þá segir hann að síðast þegar að hljómsveitin fór í hljóðver hafi hann mætt daglega í 2 mánuði en félagar hans einungis í 11 daga. Hann sagðist einfaldlega hafa sagt þeim að hann hafi ekki áhuga á að fresta öðrum verkefnum á sinni könnu nema að allir væru tilbúnir að leggja sig 100% fram og það sé eitthvað sem hann sjái ekki fyrir sér í náinni framtíð.

Framtíð Blink 182 virðist vera í uppnámiVísir/Getty
Meira af Blink 182 því Tom Delonge setti einnig inn Twitter færslu sem hann eyddi svo nánast strax aftur. En þar kom fram að hljómsveitin hefði íhugað að reka trommarann Travis Barker og að hann og Mark Hoppus hafi eytt viku í að ræða sín á milli hvort þeir ættu að reka trommarann. Bassaleikarinn Mark Hoppus tjáði sig um þessar ásakanir í gærkvöldi og staðfesti frásögn Tom Delonge en sagði að allan tímann hefði verið ljóst að Delonge hafi bara verið reiður og þurft að fá að losa aðeins um reiðina. Forsaga málsins er sú að Travis Barker hætti við að fara með Blink 182 í tónleikaferð til Ástralíu á síðustu stundu vegna lofthræðslu, en trommarinn lifði af flugslys árið 2008 þar sem að fjórir létust. Þeir fengu annan trommara til að tromma fyrir sig í ferðinni en margir tónleikahaldarar reiddust mikið að Travis Barker væri ekki með í för og töldu sig illa svikna og þurfti Tom Delonge að svara fyrir þetta allt saman. Mark Hoppus viðurkenndi að þeir hafi rætt saman í síma eftir ferðina en það var þó ekki mikil alvara á bakvið þær samræður og eftir nokkra daga hafi Tom Delonge hringt til baka og sagt að hann vildi ekki lengur losna við Travis Barker úr hljómsveitinni.

Nú styttist í næstu plötu Noel Gallagher sem hefur fengið nafnið Chasing Yesterday og er væntanleg þann 2. mars. Sjálfur segir Gallagher að platan sé full af lögum sem lætur fólk kýla með krepptum hnefa upp í loftið á meðan að það grætur. En Noel segir að þessi sérstaka lýsing á lögum sínum séu írsku ræturnar, en hann segir að afkomendur Íra séu aldrei ánægðir og reiðast gleðinni.

Carl Barat segist reikna með að þurfa sjálfur á einhverskonar sálfræðiaðstoð að halda vegna þess hversu vel hljómsveitarfélaga hans Pete Doherty gangi að losa sig við heróínfíknina. En í viðtali við blaðið Loaded sagði Barat að hann hefði glímt við þunglyndi sem skyggði oft á allt það góða sem hann hefði afrekar í lífinu. Sagði hann að nú þegar að The Libertines væru að koma aftur saman og Pete Doherty væri laus við heróínfíknina væri hann að afreka eitthvað 








×