Heiðarlegur baráttumaður og ærleg manneskja Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. júní 2015 19:06 Hildur Sverrisdóttir, Árni Páll Árnason og Margrét Tryggvadóttir eru meðal þeirra sem hafa minnst Péturs Blöndal Vísir
Fjölmargir hafa vottað Pétri Blöndal og fjölskyldu hans virðingu sína frá því að fregnir af andláti hans bárust nú í dag. Pétur lést á heimili sínu í fyrrakvöld en hann hafði glímt við krabbamein um nokkurt skeið. Börn Péturs sögðu frá andláti hans á Facebook síðu hans.Þeir sem minnast Péturs á Facebook eru fjölmargir, jafnt pólítiskir samherjar sem andstæðingar. Illugi Jökulsson minnist Péturs sem merkilegs stjórnmála manns. „Hann var í eðli sínu frjálshyggjumaður og mörgum skoðunum hans var ég út af fyrir sig sammála, en öðrum alveg ósammála - „fé án hirðis“ og það allt,” segir Illugi. „En maður hafði alltaf á tilfinningunni að Pétur væri heiðarlegur baráttumaður fyrir sínum hugsjónum, og það sem meira var: Ágæt og ærleg manneskja. Ég votta aðstandendum hans og vinum einlæga samúð.” Pétur Blöndal var merkilegur stjórnmálamaður. Hann var í eðli sínu frjálshyggjumaður og mörgum skoðunum hans var ég út...Posted by Illugi Jökulsson on Sunday, 28 June 2015 Margrét Tryggvadóttir, fyrrverandi þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir einnig frá reynslu sinni af Pétri á Facebook-síðu sinni í dag. Hún segist muni sakna Péturs, þau hafi ekki alltaf verið sammála en að þau hafi alltaf geta rætt málin „í góðri sátt“ Hún minnist hans sem „svolitlum pönkara inn við beinið” sem hugsaði oft út fyrir kassann og reyndi að smíða nýjar lausnir. Þá hafi hann verið einstaklega vinnusamur. „Hann taldi ekki eftir sér, þrátt fyrir erfið veikindi, að standa vaktina í þingsal lengur en allir aðrir,” segir Margrét og heldur áfram: „Ég man sérstaklega eftir að hafa heyrt í honum eldsnemma í morgunþætti í útvarpinu. Hann hafði komið beint úr þinginu þar sem hann hafði talað um Icesave alla nóttina. Svo sátum við saman á nefndarfundum til hádegis og eftir það tóku þingstörfin við og alltaf harðneitaði Pétur að fara heim og hvíla sig,” segir Margrét. „Hann sagði að maður sem væri búin að hlaupa Laugaveginn margoft gæti vel sleppt því að sofa við og við. „Farið þið heim, þið eigið fjölskyldu og börn,' sagði hann gjarna“. Ég mun sakna Péturs. Við vorum ekki alltaf sammála en mættumst oft á miðri leið og gátum svo sannarlega alltaf rætt má...Posted by Margrét Tryggvadóttir on Sunday, 28 June 2015 Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi minnist Péturs sem duglegs stjórnmálamanns „sem fylgdi alltaf sannfæringu sinni en bar jafnframt virðingu fyrir skoðunum annarra,” segir Hildur og telur ólíklegt að hann hefði geta gefið „ungum stjórnmálamanni betra veganesti,” eins og hún kemst að orði. Mér þykir afskaplega vænt um samstarf og viðkynni okkar Péturs Blöndal. Hann var duglegur stjórnmálamaður sem fylgdi...Posted by Hildur Sverrisdóttir on Sunday, 28 June 2015 Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir Pétur hafa verið skemmtilegan samstarfsmann, orðheldinn og einbeittan. „Við unnum oft saman og deildum um margt, en náðum vel saman í baráttunni gegn því að láta lífeyrissjóði almennings greiða húsnæðisskuldir sumra. Svo deildum við áhuga á langhlaupum og hlupum stundum saman,” segir Árni um leið og hann vottar aðstandendum Péturs hans dýpstu samúð. Pétur var skemmtilegur samstarfsmaður, orðheldinn og einbeittur. Við unnum oft saman og deildum um margt, en náðum vel...Posted by Árni Páll Árnason on Sunday, 28 June 2015 Pétur settist fyrst á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 1995 og hefur hann sinnt þeim störfum síðan. Frekari upplýsingar má sjá í æviágripi hans á vef Alþingis. Útför Péturs fer fram í kyrrþey að hans ósk. Fjölskylda hans afþakkar blóm og kransa en bendir þeim sem vilja minnast Péturs áMinningarsjóð krabbameinslækningadeildar.
Tengdar fréttir Pétur Blöndal er látinn Lést úr krabbameini á heimili sínu í fyrrakvöld. 28. júní 2015 16:51 Mest lesið Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Innlent „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Innlent Rífa íþróttahúsið Innlent Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Innlent McKellen heill á húfi Erlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Innlent Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Innlent „Þetta setur okkur í svolítið einkennilega stöðu“ Innlent Vantrauststillaga lögð fram Innlent Fleiri fréttir Tæplega fimmtíu leigubílstjórar eiga von á kæru Sigurður Ingi fjármálaráðherra slátraði samgönguáætlun Sigurðar Inga innviðaráðherra Dæmi um að ökumenn slökkvi á skynjara sem bjargaði lífi hans Eldgosið stöðugt og gosmengun til norðurs Íslenskir unglingar undir pari í skapandi hugsun hins daglega lífs Aukin bjartsýni vegna hitaveituholunnar á Ísafirði Gagnrýnir viðbúnað lögreglu og takmarkað aðgengi almennings að Austurvelli Vantrauststillaga lögð fram Sá sæng sína upp reidda „Þetta setur okkur í svolítið einkennilega stöðu“ Stjórnarflokkarnir ekki enn komnir með forgangslista mála Umdeild öryggisgæsla á Austurvelli og deilt um bílastæði á flugvöllum Bein útsending: Kynna aðgerðir gegn gullhúðun Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Án rafmagns í tuttugu mínútur „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Rífa íþróttahúsið Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Sjá meira