Innlent

Reyndu að kúga fé út úr Sigmundi Davíð

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Tveir voru handteknir síðastliðinn föstudag vegna fjárkúgunartilraunar á hendur forsætisráðherra.
Tveir voru handteknir síðastliðinn föstudag vegna fjárkúgunartilraunar á hendur forsætisráðherra. Vísir/ERNIR

Umfangsmikil lögregluaðgerð var á föstudag þar sem tveir voru handteknir vegna fjárkúgunartilraunar á hendur Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var reynt að kúga milljónir út úr honum.

Í bréfi sem barst Sigmundi og fjölskyldu var þess krafist að þau myndu reiða fram nokkrar milljónir króna ella yrðu upplýsingar sem áttu að vera viðkvæmar fyrir forsætisráðherra gerðar opinberar.

Málið var umsvifalaust tilkynnt lögreglu sem réðist í umfangsmiklar aðgerðir á föstudag sem leiddu til handtöku einstaklinganna tveggja.

Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í morgun. Hann vildi ekki staðfesta að aðgerðirnar hefðu átt sér stað en sagði að von væri á fréttatilkynningu frá lögreglunni fyrir hádegi.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmaður forsætisráðherra, sagðist ekki geta tjáð sig um málið í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×