Óveður hafði áhrif á afkomu VÍS Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. apríl 2015 17:07 Sigrún Ragna Ólafsdóttir er forstjóri VÍS. vísir/vilhelm.
Afkoma Vátryggingafélags Íslands á fyrsta ársfjórðungi ársins var umfram væntingar og skýrist aðallega af mjög góðri ávöxtun af fjárfestingaeignum félagsins á tímabilinu, en hún nam 3,2%. „Afkoma VÍS af vátryggingastarfsemi var ágæt ef litið er framhjá áhrifum óveðursins þann 14. mars síðast liðinn,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri Vátryggingafélags Íslands. Árshlutauppgjör fyrir fyrsta fjórðung var kynnt í dag. • Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 733 milljónum króna samanborið við 14 milljóna króna tap fyrir sama tímabil árið 2014. • Fjármunatekjur námu 1.113 milljónum króna samanborið við 171 milljón króna fyrir sama tímabil í fyrra. • Iðgjöld tímabilsins námu 3.959 milljónum króna samanborið við 3.861 milljónir króna sama tímabil í fyrra og nemur hækkunin 2,6%. • Bókfærð tjón vegna óveðurs þann 14. mars síðastliðinn námu rúmum 240 milljónum króna. • Framlegð af vátryggingarekstri var neikvæð um 165 milljónir króna. Framlegð af vátryggingarekstri á sama tímabili í fyrra var neikvæð um 66 milljónir króna. Sigrún Ragna segir að óveðrið hafi valdið talsverðu tjóni hjá landsmönnum og í lok mars höfðu ríflega 500 tjón verið tilkynnt til félagsins vegna þess og bókfærð tjón komin yfir 240 milljónir króna. „Þetta er mesta tjón sem orðið hefur í einu óveðri hjá félaginu síðan febrúar 1991, en í desember 2007 voru þrjú óveður sem ollu til samans svipuðu tjóni,“ segir Sigrún Ragna. Samsett hlutfall var 105,2% á tímabilinu og telur óveðrið í mars rúm 6% í hlutfallinu. Til samanburðar var samsett hlutfall 102,9% fyrir sama tímabil árið 2014. Rekstrarkostnaður hefur farið lækkandi eða um sem nemur 2,5% frá sama tíma í fyrra. Kostnaðarhlutfall lækkaði úr 22,7% á fyrsta fjórðungi 2014 í 21,5% nú.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira