Fyrrverandi sendiherra fær ekki svör frá Seðlabanka vegna fjárfestingar í CRI Þorbjörn Þórðarson skrifar 30. apríl 2015 18:30 Metanólverksmiðja Carbon Recycling International í Svartsengi við Grindavík. Þar er metanól framleitt með endurvinnslu á koltvísýringsútblæstri og raforku.
Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi getur ekki fjárfest í sprotafyrirtækinu Carbon Recycling International hér á landi því hann fær ekki leyfi Seðlabankans vegna gjaldeyrishaftanna. Sendiherrann er með háar fjárfæðir fastar í skuldabréfum í íslenskum krónum hér á landi. Um er að ræða Charles E. Cobb sem var sendiherra hér á landi frá 1989-1991. Sem útlendur eigandi krónueigna á Íslandi þarf hann heimild Seðlabankans til að skipta þeim í gjaldeyri eða færa þær milli fjárfestingarflokka. Cobb hefur áhuga á því að fjárfesta í íslenska sprotafyrirtækinu Carbon Recycling International og færa eign sína úr íslenskum ríkisskuldabréfum til að fjármagna kaupin á hlutabréfum í fyrirtækinu. Vegna gjaldeyrishaftanna og reglna sem settar vor með stoð í lögum um gjaldeyrismál þarf sendiherrann fyrrverandi að fá heimild Seðlabankans til að selja skuldabréfin og nota andvirðið í fjárfestingu í Carbon Recycling. Vandamálið er að Seðlabanki Íslands hefur ekki svarað erindi sendiherrans fyrrverandi, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, þrátt fyrir að heilt ár sé liðið frá því erindið var sent. Þetta varð til þess að Charles E. Cobb ákvað að rita Bjarna Benediktssyni fjármála- og efnahagsráðherra bréf þar sem hann kvartar undan seinagangi við meðferð umsóknar sinnar hjá Seðlabankanum og óskar eftir skýringum á því hvers vegna svör hafi ekki borist í heilt ár, samkvæmt heimildum Stöðvar 2. Cobb undrast seinaganginn því hann hefur engan hug á skipta krónueignum sínum í gjaldeyri. Hann vill bara nota þær til að styðja við upprennandi sprotafyrirtæki á Íslandi og taka þátt í uppbyggingu íslensks atvinnulífs. Sindri Sindrason stjórnarformaður Carbon Recycling segist ekki geta tjáð sig um einstök mál en segir að það hafi gerst oftar en einu sinni að útlendingar sem eigi krónueignir hér á landi hafi ekki getað fjárfest í fyrirtækinu fyrir þær þar sem ekki hafi fengist heimild frá Seðlabanka Íslands.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira