Tiltekt frekar en ný mynt Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. nóvember 2015 07:00 Stjórnmálamenn tókust á um efnahagsmál í Hörpu í gær. vísir/vilhelm „
Ég er þeirrar skoðunar, og við í Samfylkingunni, að þessi ríkisstjórn sé að loka augunum allt of skarpt gagnvart þeim kostnaði sem fylgir því að koma þaki yfir höfuðið á Íslandi,“ sagði Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, á fundi Samtaka atvinnulífsins um fjármál ríkisins í Hörpu í gær. Samkvæmt nýbirtri skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja 53 prósent fá nýja mynt. Búsetu á „örmyntsvæði“ segir Katrín ástæðu þess að hér sé dýrara að koma sér þaki yfir höfuðið en erlendis. „Og ef menn eru ekki tilbúnir til þess að fara þá leið að taka upp aðra mynt með því að ganga í myntbandalag, viljið þið þá bara segja okkur hvaða plan annað þið ætlið að bjóða okkur upp á?“ Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sagði að leiðin til að byggja upp samfélag, sem væri jafnstætt samfélögunum á Norðurlöndunum, væri meiri agi í ríkisfjármálum. „Við getum vel lifað með krónunni, ef það er agi í ríkisfjármálum. Eigum við að taka upp evru með vöxtunum í Kýpur eða Svartfjallalandi?“ spurði hann. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði að fyrst og fremst þyrfti að taka til í efnahagsmálum heima fyrir. Þegar það væri búið mætti ræða upptöku nýrrar myntar. Forsenda þess að hægt væri að taka upp nýja mynt væri hvort eð er sú að tekið yrði til heima fyrir.
Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira