350 íbúðir og einstaklingsherbergi í Háskólagörðum HR 3. júní 2015 11:36 Væntanlegt útlit bygginga á svæðinu MYND/HR
Háskólinn í Reykjavík áformar að byggja 350 nýjar íbúðir og einstaklingsherbergi, auk leikskóla og þjónustuhúsnæðis, í nýjum Háskólagörðum vestan Öskjuhlíðar. Borgarráð samþykkti í síðustu viku að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Unnið er að hönnun og fjármögnun bygginga á svæðinu og vonast er til að framkvæmdir geti hafist á næsta ári. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, segir í tilkynningu frá skólanum að nýjum Háskólagörðum sé ætlað að bæta úr brýnni þörf nemenda skólans á íbúðarhúsnæði. „Nýir Háskólagarðar eru brýnt hagsmunamál nemenda við HR og liður í áætlun HR um að skapa öflugt þekkingarþorp við skólann. Ég er þess vegna mjög ánægður með að þetta verkefni sé nú komið í fullan gang.“ Fyrirhugaðar íbúðir eru ætlaðar til leigu og tímabundinnar búsetu fyrir nemendur og starfsfólk fyrirtækja sem starfa hjá HR og öðrum þekkingarfyrirtækjum í nágrenninu.Yfirlitsmynd af fyrirhugaðri byggð.MYND/HRMiðað er við litlar íbúðir og einstaklingsherbergi með sameiginlegri aðstöðu. Byggingar verða almennt tvær til fjórar hæðir. Á jarðhæð er gert ráð fyrir möguleika á dagvöruverslun og annarri þjónustu. Syðst á svæðinu, næst Háskólanum í Reykjavík, er gert ráð fyrir leikskóla og annarri hverfisþjónustu. Við hönnun bygginga á svæðinu verður sérstök áhersla á að tengja byggðina vel við umhverfið með sjálfbærni og vistvænar samgöngur að leiðarljósi. Byggðin mun einkennast af skjólgóðum og friðsælum inngörðum og göngu- og hjólastígum sem tvinna svæðið saman við útivistarsvæði Öskjuhlíðar. Bygging Háskólagarðanna er óháð framtíð Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni. Nýtt deiliskipulag var unnið af Kanon Arkitektum, í samstarfi við HR og Reykjavíkurborg, í kjölfar hugmyndasamkeppni um skipulag svæðisins sem haldin var í fyrra. Skipulagið verður til sýnis og kynningar í anddyri skrifstofa Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14 á næstu dögum.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira