AGR og Reynd sameinast Atli Ísleifsson skrifar 29. september 2015 14:59 Haukur Hannesson er framkvæmdastjóri AGR-Reynd ehf. Mynd/AGR-Reynd
Fyrirtækin AGR og Reynd hafa sameinast og munu bjóða Dynamics NAV viðskiptalausnir samhliða vörustjórnunarlausnum AGR á innlendan og erlendan markað. Í tilkynningu kemur fram að sameinað félag verði með starfsemi í Bretlandi og Danmörku en öll þróun fari fram hérlendis. „Meirihluti tekna félagsins kemur erlendis frá í gegnum fjölbreyttan hóp viðskiptavina, en fyrirtækið þjónustar meðal annars alþjóðlega viðskiptavini á borð við Le Creuset, BoConcept, IKEA í Saudí Arabíu, Best Denki í Singapore ásamt meirihluta þeirra skemmtiferðaskipa sem koma til landsins. Frá árinu 1997 hefur AGR sérhæft sig í hugbúnaðargerð og ráðgjöf á sviði aðfangastýringar en hugbúnaðurinn er í notkun hjá mörgum af öflugustu fyrirtækjum landsins. Sérstaða Reyndar byggir á Dynamics NAV viðskiptakerfinu ásamt verslunarlausnum frá LS Retail. Sameinað fyrirtæki mun því geta á einum stað boðið ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu á NAV, einu vinsælasta viðskiptakerfi í heiminum, samhliða lausnum og ráðgjöf í vörustjórnun gegnum AGR hugbúnaðinn.“ Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri hjá AGR-Reynd ehf., segir að með stofnun AGR-Reyndar sé verið að sameina helstu sérfræðinga landsins í vörustjórnun við einhverja reynslumestu sérfræðinga landsins í innleiðingu og þjónustu á NAV viðskiptahugbúnaðnum. „Sérstaða okkar byggir á því að bjóða fyrsta flokks vörustjórnunarþekkingu til viðbótar við öfluga þjónustu á Dynamics NAV. Stærra teymi eflir ennfremur vöruþróun og breikkar þjónustuframboð okkar til viðskiptavina, en starfsmenn hjá AGR-Reynd eru 43 í dag. Við munum á næstu vikum og mánuðum halda áfram að kynna nýjar hugbúnaðarlausnir til viðskiptavina okkar og ber þar helst að nefna veflausnina AGR5 ásamt appi sem gefur stjórnendum lykiltölur úr rekstrinum beint í snjallsímann,“ segir Haukur.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira