Starfsmenn fá frí til að fagna afmæli kosningaréttar kvenna Stefán Árni Pálsson skrifar 16. apríl 2015 11:55 Öll útibú bankans verða lokuð og önnur starfsemi í lágmarki. vísir/rósa
Landsbankinn hefur ákveðið að veita starfsfólki sínu frí eftir hádegið þann 19. júní til að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum þegar þess verður minnst að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Öll útibú bankans verða lokuð og önnur starfsemi í lágmarki. Í tilkynningunni segir að með þessu vilji bankinn sýna í verki stuðning sinn við jafnrétti. „Landsbankinn hefur skýra jafnréttisstefnu og frá árinu 2010 hefur bankinn haft þá stefnu að hlutur hvors kyns í forystusveit bankans sé ekki undir 40%. Í framkvæmdastjórn bankans sitja nú 4 konur og 4 karlar og bankaráð Landsbankans uppfyllir kröfur um jafnan hlut kynja í stjórnum. Í Landsbankanum eru nú 61% starfsmanna konur og 39% karlar,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að Landsbankinn leitist við að skapa framúrskarandi vinnustað þar sem allir eiga sömu möguleika til starfa og starfsþróunar og þar sem konur og karlar eigi jafna möguleika til stjórnarsetu. Bankinn forðast að skilgreina störf sem karla- eða kvennastörf. „Landsbankinn greiðir sömu laun fyrir sambærileg störf og nýverið fékk bankinn gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC. Landsbankinn er fyrstur banka á Íslandi til að hljóta gullmerkið og er jafnframt stærsta fyrirtækið sem hefur undirgengist og staðist þá úttekt.“
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira