Nova eyðir út „óviðeigandi“ myndum frá Dóra DNA sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 2. desember 2015 15:15 Myndböndin vöktu hörð viðbrögð og hafa ýmsir krafist þess að málið verði tilkynnt til barnaverndar.
Fjarskiptafyrirtækið Nova hefur eytt út myndböndum sem grínistinn Dóri DNA birti á Snapchat-aðgangi þess í gær. Myndirnar vöktu hörð viðbrögð en á þeim má sjá hvernig Dóri réttir börnum sínum hníf og byssu. „Það er sérkennilegt að fara að sofa og vakna upp í atburðarrás úr eigin leikriti,“ skrifar Dóri á Twitter og vísar þannig til sýningu hans og Sögu Garðarsdóttur, „Þetta er grín, án djóks“ sem fjallar um það hvenær grín er fyndið og hvenær það fer yfir mörkin. Málið hefur mikið verið rætt á samfélagsmiðlum í dag og sitt sýnist hverjum. Saga Garðarsdóttir sá sig knúna til að taka upp hanskann fyrir félaga sinn og tók fram að um væri að ræða leikmuni; byssu úr plasti og bitlausan hníf. „Halldór er frábær faðir,“ skrifar hún á Facebook.Sjá einnig: Salka Sól fær fimmtíu þúsund en aðrir rándýran farsímaNova tjáði sig jafnframt um málið á Facebook og sagðist ekki ritskoða Snapchat. Engu að síður er búið að eyða út myndunum. „Við höfum átt gott samstarf við Dóra DNA. Við ritskoðum ekki snappið, þetta er bein útsending, raunveruleikasjónvarp og dagskrárgerð af því fylgja áskoranir. Við tökum undir umræðuna að á Nova-snappinu í gær var því miður óviðeigandi atriði og við biðjumst afsökunar á því.“ Símafyrirtækið fær reglulega listamenn til að halda úti Snapchat-reikningi þess en í gær voru það þau Dóri, Saga, Björn Bragi og Steindi sem fengu það verkefni. Í janúar síðastliðnum var söngkonan Salka Sól Eyfeld beðin um að sjá aðganginn í einn dag í skiptum fyrir fimmtíu þúsund krónur. Hún hafnaði því þó eftir að hafa fengið upplýsingar um að fyrirrennarar hennar hefðu fengið mun betur borgað, eða iPhone 6 farsíma að launum.
Tengdar fréttir Vinsælustu Íslendingarnir á Snapchat Útvarpsþátturinn FM95Blö og Pétur Jóhann eru vinsælustu snapparar landsins eftir því sem Vísir kemst næst. 7. ágúst 2015 07:00 Sölku Sól boðið 50 þúsund fyrir að sjá um Snappið en öðrum iPhone 6 Nova hefur sætt gagnrýni fyrir kynjahalla í umsjónarmönnum Snappsins. Markaðsstjóri Nova segir fyrirtækið leggja áherslu á að vinna með báðum kynjum 14. janúar 2015 17:02 Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf John Frieda er látinn Tíska og hönnun „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Vinsælustu Íslendingarnir á Snapchat Útvarpsþátturinn FM95Blö og Pétur Jóhann eru vinsælustu snapparar landsins eftir því sem Vísir kemst næst. 7. ágúst 2015 07:00
Sölku Sól boðið 50 þúsund fyrir að sjá um Snappið en öðrum iPhone 6 Nova hefur sætt gagnrýni fyrir kynjahalla í umsjónarmönnum Snappsins. Markaðsstjóri Nova segir fyrirtækið leggja áherslu á að vinna með báðum kynjum 14. janúar 2015 17:02
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“