Sala á metani meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir Haraldur Guðmundsson skrifar 8. október 2014 07:30 Framleiðsla Norðurorku á að nægja fyrir 600 fólksbíla á ári til ársins 2030. Vísir/Auðunn „
Eftirspurnin er meiri en við bjuggumst við og reynsla okkar af þessum fyrsta mánuði hefur því verið góð,“ segir Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku, um reynslu fyrirtækisins af sölu á metani í gegnum nýja afgreiðslustöð á Akureyri sem var opnuð fyrir rúmum mánuði. „Við gerðum áætlanir til fyrstu sex áranna og okkur sýnist að fyrsta árið, miðað við það sem við höfum séð þennan eina mánuð, gangi vel eftir,“ segir Helgi.Helgi JóhannessonNorðurorka vinnur metan úr gömlum sorphaugum í Glerárdal á Akureyri. Fyrirtækið samdi í fyrra við Olís um markaðssetningu og smásölu eldsneytisins. „Markaðsstarfið er þó í raun varla farið af stað því þetta er langtímahugsun og við vildum fyrst sjá hvernig þessi stöð myndi ganga og eftir það vinna með Olís að frekari markaðssetningu,“ segir Helgi. Heildarkostnaður Norðurorku, sem er nánast alfarið í eigu Akureyrarkaupstaðar, vegna metanverkefnisins nemur að sögn Helga um 350 milljónum króna. Verkefnið var fjögur ár í undirbúningi en á þeim tíma dróst sala á nýjum metanbílum saman. Fréttablaðið greindi í janúar síðastliðnum frá því að einungis 69 nýir metanbílar hefðu selst á síðasta ári samanborið við 201 bíl árið 2012. Bifreiðum sem var breytt í metanbíla fækkaði þá einnig úr 195 í 57. „Margir spurðu þá hvort við ætluðum að endurskoða okkar áform en þetta er auðvitað langtímaverkefni og þetta gengur vafalaust líka í bylgjum. Hins vegar á ég svolítið erfitt með að skilja af hverju fólk sækir ekki meira í þetta. Eldsneytið er talsvert ódýrara en til dæmis bensín og þau gjöld sem lögð eru á metanbíla eru enn lág,“ segir Helgi.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira