Viðskipti innlent

Rammi eykur hlut sinn í Primex

Haraldur Guðmundsson skrifar
Primex framleiðir meðal annars megrunarvörur og vörur undir merkjunum LipoSan og ChitoClear.
Primex framleiðir meðal annars megrunarvörur og vörur undir merkjunum LipoSan og ChitoClear. Mynd/Primex
Útgerðarfyrirtækið Rammi hf. í Fjallabyggð hefur keypt 22,5 prósenta hlut Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins í siglfirska líftæknifyrirtækinu Primex ehf.

Kaupverðið er trúnaðarmál. Rammi á nú 72,86 prósenta hlut í fyrirtækinu en Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað á um 14 prósent og Samherji hf. á Akureyri tæp átta prósent.

„Við ætlum að halda áfram á sömu braut, sem felur í sér þróun og útflutning á vörum Primex til Asíu, Ameríku og Evrópu,“ segir Ólafur Helgi Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma og Primex.

Líftæknifyrirtækið var stofnað á Siglufirði árið 1997 og þar starfa nú fjórtán manns. Fyrirtækið vinnur efnið kítósan úr rækjuskel. Efnið er notað í vörur á borð við lyf, fæðubótarefni, smyrsl, snyrtivörur og matvæli. Heimsþekkt fyrirtæki á borð við Loréal, Wella og Herbalife eru á meðal viðskiptavina Primex. Yfir milljarði króna hefur verið varið í uppbyggingu verksmiðju fyrirtækisins á Siglufirði, í rannsóknir, þróun og markaðsstarf.

Primex hagnaðist um rúmar 82 milljónir króna árið 2012 og 43 milljónir árið áður. Eigið fé var jákvætt um 259,7 milljónir króna við árslok 2012, samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins.

„Það var hagnaður í fyrra en hann var minni en árið 2012,“ segir Ólafur, spurður um afkomu fyrirtækisins.

„Það sem hamlar vexti okkar helst er að við þurfum meira hráefni. Við tökum rækjuskel frá öllum verksmiðjum á Íslandi nema einni en þessi hráefnisskortur tengist aðallega því hversu lítil rækjuveiði er við Ísland,“ segir Ólafur. Hann segir innflutning á rækjuskel í skoðun.

Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, segir sjóðinn hafa verið virkan þátttakanda í starfi Primex um langt skeið.

„Við vorum búin að vera þarna frá 1998 og áhættan sem fylgir fjárfestingum í nýsköpunarfyrirtækjum hafði minnkað. Þannig að okkar hlutverki var lokið og nú getum við notað söluandvirðið í aðra hluti,“ segir Helga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×