Síminn bauð ekki í réttinn að Meistaradeild Evrópu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2014 10:35 Liðsmenn Real Madrid fagna sigri í Meistaradeild Evrópu síðastliðið vor. Vísir/AFP
Óvíst er hvaða sjónvarpsstöð fær réttinn að Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu næstu þrjú árin. 365 Miðlar buðu í réttinn, Síminn gerði það ekki og forsvarsmenn Skjásins vilja hvorki neita né játa hvort þeir hafi skilað inn tilboði. Frestur til að skila inn tilboðum í sjónvarpsréttinn fyrir keppnistímabilin þrjú sem hefjast árin 2015, 2016 og 2017 rann út klukkan tíu á mánudagsmorgun. Fréttatíminn greindi frá því á dögunum að Síminn hyggðist berjast við 365 miðla um sjónvarpsréttinn. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, staðfesti við Vísi að fyrirtækið hefði ákveðið að bjóða ekki í réttinn. Hjörvar Hafliðason, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Sport, staðfesti við Vísi að 365 miðlar hefðu boðið í sjónvarpsréttinn. Þá vilja forsvarsmenn Skjásins ekkert gefa uppi um hvort þeir hafi skilað inn tilboði eða ekki. Fréttatíminn fullyrti þó í frétt sinni að Skjárinn ætlaði ekki að bjóða í réttinn. „Við veitum engar upplýsingar um hvaða efnisréttindi við sækjumst eftir, nema þá að láta vita þegar við náum þeim. Það er það eina sem þú færð héðan,“ sagði Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjásins, í svari við fyrirspurn Vísis. Meistaradeild Evrópu er afar vinsælt sjónvarpsefni í heimi íþróttanna og ljóst að sjónvarpsrétturinn er mjög dýr. Hleypur hann á hundruðum milljóna. Ekki er vitað hvenær svars er að vænta frá Knattspyrnusambandi Evrópu vegna Meistaradeildar Evrópu. Þegar boðið var í sjónvarpsréttinn fyrir fjórum árum var tilkynnt um niðurstöðuna rúmri viku eftir að lokað var fyrir skil á tilboðum.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira