Skjárinn hringdi í bannmerktan símnotanda Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 23. maí 2014 13:29 vísir/gva
Skjánum var óheimilt að nota nafn og símanúmer einstaklings sem bannmerktur var í þjóðskrá. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar. Kvartað var yfir ítrekuðum símtölum með beinni markaðssetningu og barst Persónuvernd kvörtun hinn 12. október 2013, tveimur dögum eftir að kvartanda var boðin áskrift að sjónvarpsefni. Síminn hf. hefur staðfest fyrir hönd Skjásins ehf að hringt hafi verið í kvartanda fyrir mistök, þrátt fyrir að hann hafi verið bannmerktur í Þjóðskrá. „Hringt hefur verið ítrekað í bannmerkt símanúmer þrátt fyrir að strax við fyrstu hringingu var starfsmanni sem hringdi bent á bannmerkingu og þess krafist að öllum upplýsingum um undirritaðan yrði eytt úr tölvukerfum hringjanda. Þess skal einnig getið að undirritaður hefur verið á svokallaðri „bannskrá þjóðskrár“ frá ofanverðri síðustu öld,“ segir kvörtuninni. Þjóðskrá Íslands heldur skrá yfir þá sem ekki vilja að unnið sé með persónuupplýsingar um sig af aðilum sem stunda markaðssetningarstarfsemi og er sú skrá kölluð bannskrá. Í kjölfar kvörtunarinnar óskaði Persónuvernd eftir nánari upplýsingum frá Skiptum hf., móðurfélagi Símans hf., því kvartandi taldi að símtalið mætti rekja til þess að Síminn hefði miðlað persónuupplýsingum um hann til Skjásins án heimildar. Kvartandinn hafði verið fyrrverandi viðskiptavinur Skjásins og var því fyrirhugað að bjóða honum að koma aftur í viðskipti. Hins vegar hafi láðst að merkja við hann í samræmi við bannskráningu í símaskrá. Símanúmeri hans hefur nú verið eytt úr skrám félagsins í samræmi við ósk hans þar um. Skjárinn tók þá fram að félaginu væri væði heimilt og skylt að varðveita upplýsingar um viðskiptasögu einstaklinga samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994.
Mest lesið Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira