Þrír fá fasta stöðu aðjúnkts á viðskiptasviði Háskólans á Bifröst Stefán Árni Pálsson skrifar 29. september 2014 10:24 mynd/Háskólinn á Bifröst
Þrír stundakennarar hafa fengið fasta stöðu aðjúnkts á viðskiptasviði Háskólans á Bifröst. Þetta eru þeir Brynjar Þór Þorsteinsson, Haraldur Daði Ragnarsson og Ragnar Már Vilhjálmsson. Háskólinn á Bifröst greinir frá þessu í tilkynningu. Brynjar Þór Þorsteinsson er með M.Sc. í alþjóðaviðskiptum frá CBS viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og B.Sc.gráðu í viðskipafræði frá Háskólanum á Bifröst. Brynjar hefur verið stundakennari á Bifröst síðan 2012 og hefur kennt markaðsfræði, þjónustustjórnun og samningatækni á grunnstigi. Einnig hefur Brynjar kennt ýmis námskeið á símenntunarsviði Háskólans á Bifröst ásamt að vera leiðbeinandi og prófdómari í BS ritgerðum. Þá hefur Brynjar unnið að markaðsrannsóknum fyrir ýmis fyrirtæki í nýsköpun. Brynjar er yfirmaður markaðs- og samskiptamála Háskólans á Bifröst og hefur gengt því starfi síðan mars 2013. Haraldur Daði Ragnarsson er með M.Sc. í hagfræði og stjórnun sem og í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði, hvorutveggja frá CBS viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Haraldur Daði hefur kennt bæði í grunn-og meistaranámi við Háskólann á Bifröst og kennir einnig við Háskólann í Reykjavík. Þá hefur hann umtalsverða reynslu af því að halda fyrirlestra og erindi á innlendum og erlendum vettvangi. Haraldur Daði hefur sinnt margvíslegum stjórnunarstöðum og gegnt trúnaðarstörfum fyrir félög og fyrirtæki. Hann hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri hjá Knattspyrnufélaginu Val, verið forstöðumaður hjá Tali og markaðssérfræðingur á einstaklings-og fyrirtækjamarkaði hjá Símanum, ásamt því að vinna við dagskrárgerð í útvarpi til margra ára. Haraldur Daði hefur víðtæka stjórnunarreynslu og er hann einn af stofnendum og meðeigendum í ráðgjafafyrirtækinu Manhattan Marketing. Ragnar Már Vilhjálmsson hefur verið stundakennari við Háskólann á Bifröst síðan árið 2004 og kennt ýmsa markaðsfræðiáfanga, bæði í grunnnámi og meistaranámi, auk þess að leiðbeina fjölda nemenda við skrif BS og MS ritgerða. Ragnar er með M.Sc. gráðu í Business Performance Management frá Viðskiptaháskólanum í Árósum og BBA gráðu í Marketing frá The University of Texas í San Antonio. Ragnar hefur starfað við markaðsstjórnun frá árinu 1997, þar á meðal hjá OZ.COM, Sambíóunum og í 10 ár á markaðssviði Íslandsbanka. Í dag rekur Ragnar ráðgjafafyrirtækið Manhattan Marketing ásamt tveimur meðeigendum.
Mest lesið Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira