Gefur innbrotsþjóf tækifæri til að bæta ráð sitt Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 29. september 2014 22:54 „Við öll gerum einhver mistök á lífsleiðinni.“ vísir/getty/vilhelm „
Þetta er bara hræðilegt. Að vita til þess að einhver hafi verið að gramsa í eigum manns, og sérstaklega það að einhver hafi valsað um herbergi dætra sinna. Það er eiginlega það allra versta,“ segir Finna Pálmadóttir, sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn á heimili hennar í Keflavík síðastliðinn laugardag. Finna var ásamt eiginmanni sínum og dætrum í afmælisveislu í Reykjavík síðastliðið laugardagskvöld þegar innbrotið átti sér stað. Allar dyr voru læstar. Innbrotsþjófurinn fann sér því leið inn um einn glugga hússins. Þjófurinn hafði á brott með sér ýmis raftæki, meðal annars fartölvu Finnu, og nemur verðmæti þýfisins hundruðum þúsunda. Finna ber þó engan kala í brjósti til þjófsins og vill gefa honum tækifæri á að bæta fyrir brot sitt. Hún ákvað því að skrifa pistil á Facebook síðu sína í þeirri von að innbrotsþjófurinn lesi hann. „Kæri innbrotsþjófur, þú ert ekkert einn um það að afvegaleiðast, við öll gerum einhver mistök á lífsleiðinni. Ég veit að það býr í þér eitthvað gott og því vil ég gefa þér tækifæri á því að bæta ráð þitt og skila mér tölvunni minni eða að lágmarki leyfa mér að afrita gögnin á henni,“ skrifar Finna og bætir við að hún sé tilbúin til að aðstoða hann í þeim erfiðleikum sem hann hugsanlega á við að stríða. „Ef einhver sem þekkir til manna/kvenna sem stunda slíka iðju og/eða bara vonandi þú kæri innbrotsþjófur lest þessi skilboð frá mér til þín, þá væri ég óendanlega þakklát ef þú gæti skilað mér tölvunni til baka. Ég skal bjóða þér í kaffi og með því og ræða við þig (því mér þykir líklegt að þú eigir við dýpri vanda að etja) og jafnvel leiðbeint þér eða hjálpað þér á einhvern hátt. Endilega hreint sendu mér skilaboð kæri innbrotsþjófur og við getum mælt okkur mót,“ skrifar Finna að lokum. Hér að neðan má sjá pistil hennar í heild sinni. Innlegg frá Finna Pálmadóttir.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira