Forstjóraskipti hjá Elkem Ísland Stefán Árni Pálsson skrifar 5. júní 2014 15:58 Einar Þorsteinsson mun nú stýra starfsemi Elkem Foundry í Asíu.
Einar Þorsteinsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Elkem Ísland sl. 6 ár, hefur verið ráðinn til þess að stýra starfsemi Elkem Foundry í Asíu en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Elkem. Elkem Foundry hefur sett stefnuna á að styrkja stöðu sína á hratt vaxandi mörkuðum í Asíu á næstu árum og er Einari ætlað að leggja sitt af mörkum til þess verkefnis. Við starfi hans tekur Gestur Pétursson, umhverfis- og öryggisstjóri Elkem Ísland, sem jafnframt hefur verið staðgengill Einars og náinn samstarfsmaður um margra ára skeið. Elkem A/S er einn af helstu framleiðendum kísilmálms í heiminum. Hjá félaginu starfa um 2.300 manns í verksmiðjum þess í í Evrópu, Ameríku, Afríku og Asíu. Elkem A/S er í eigu China National Bluestar, sem keypti félagið árið 2011. „Það er mikil áskorun fólgin í þessu nýja starfi og þetta tækifæri er ánægjuleg viðurkenning á þeim árangri sem náðst hefur hér á Grundartanga á undanförnum árum,“ segir Einar Þorsteinsson. Einar segir að þar eigi allir starfsmenn Elkem Ísland sinn þátt. „Hópurinn hefur verið afar samhentur og metnaðarfullur og það hafa verið mikil forréttindi að vinna með þessu góða fólki í mörgum krefjandi verkefnum sem tekist hefur verið á við á undanförnum árum.“ „Við erum öll stolt af því trausti sem Einari er sýnt og óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi. Ég hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Hér er einvala lið sem kann vel til verka og faglegur metnaður Elkem A/S, jafnt á sviði gæðamála og umhverfissjónarmiða, er okkur öllum dagleg hvatning til dáða,“ segir Gestur Pétursson. Forstjóraskiptin hjá Elkem Ísland munu eiga sér stað þann 1. ágúst næstkomandi.
Mest lesið Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Sjá meira