Borg bruggar tunnuþroskaðan bjór Haraldur Guðmundsson skrifar 26. júní 2014 09:00 Bruggarar Ölgerðarinnar bíða nú eftir búrbonviskítunnum frá Bandaríkjunum. Vísir/GVA
Borg Brugghús, sem er í eigu Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, ætlar að framleiða bjór til útflutnings sem verður látinn þroskast í eikartunnum. Bjórinn sem um ræðir heitir Garún og verður geymdur á búrbonviskítunnum. Brugghúsið hefur framleitt og selt bjórinn til Bandaríkjanna og í verslunum ÁTVR en hann hefur aldrei áður verið látinn þroskast í tunnum. „Við erum að bíða eftir að fá helling af búrbontunnum frá Bandaríkjunum. Við lítum á þetta sem útflutningsverkefni en bjórinn gæti einnig læðst í verslanir hér heima,“ segir Sturlaugur Jón Björnsson, bruggmeistari hjá Borg Brugghúsi. Árið 2013 setti fyrirtækið þorrabjórinn Surt 8.1 í sölu. Hann var látinn þroskast í koníakstunnum. „Við erum núna með sex til átta eikartunnur í húsi og erum búnir að fylla nokkrar. En sá bjór gæti endað sem þorrabjór frá okkur,“ segir Sturlaugur. Hann bætir við að starfsmenn brugghússins hafi einnig gert prufanir með sérrítunnum. „Maður er í raun að krydda bjórinn með því sem var áður í tunnunni. Svo að sjálfsögðu líka að reyna að ná einhverju sem gæti verið eftir af eikarbragðinu. Það er hægt að leika sér endalaust með þetta.“ Sturlaugur segir tunnurnar augljóslega fela í sér aukinn kostnað. „Og ekki síður tíminn og vinnan við þetta allt og geymsluplássið sem fer í að láta þetta standa og þroskast.“
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira