Samdráttur varð í flugferðum Íslendinga síðasta sumar Randver Kári Randversson skrifar 26. júní 2014 14:24 Vísir/GVA
Yfir sumarmánuðina í fyrra flugu fimm þúsund færri íslenskir farþegar frá Keflavíkurflugvelli en í júní, júlí og ágúst árið 2012. Í frétt á vefnum turisti.is kemur fram að samdrátturinn hafi numið rúmum fjórum prósentum en sumrin á undan hafi ferðagleði Íslendinga aukist jafnt og þétt milli ára. Skortur á hagstæðum flugmiðum og pakkaferðum kunni að hafa haft áhrif því samkvæmt fréttum komust færri út en vildu þegar líða tók á sumarið og fólk var orðið langþreytt á veðurfarinu. Strax í september fjölgaði ferðum landans til útlanda á ný og í október fóru nærri þrjátíu og átta þúsund Íslendingar út. Þetta er í fyrsta skipti sem vinsælasti ferðamánuður ársins er ekki einn af sumarmánuðunum þremur samkvæmt talningum Ferðamálastofu sem ná aftur til ársins 2002. Í fréttinni segir að í maí síðastliðnum hafi áætlunarferðir til 43 borga verið í boði en í vetur hafi áfangastaðirnir verið tæplega þrjátíu á mánuði. Þá hafi tíðni ferða á vinsælustu staðina einnig aukist í byrjun sumars og nú nái leiguflug á vegum ferðaskrifstofa hámarki. Jafnframt kemur fram að þó framboðið aukist mikið á þessum tíma árs þá dreifist utanlandsferðir Íslendinga núna jafnara yfir árið. Þannig hafi að meðaltali rúmlega þrjátíu og fimm þúsund Íslendingar farið út á mánuði síðastliðið sumar en yfir hina níu mánuðina var meðaltalið tuttugu og átta þúsund farþegar. Því hafi tæplega fjórðungi fleiri Íslendingar að jafnaði flogið til útlanda í júní, júlí og ágúst í samanburði við aðra mánuði. Munurinn á þessum tveimur tímabilum hafi hins vegar verið mun meiri fyrir áratug. Sumarið 2003 hafi til að mynda að meðaltali rúmlega þrjátíu og tvö þúsund Íslendingar farið út yfir sumarmánuðina en yfir hina mánuði ársins var meðalfjöldinn 21.650 manns eða helmingi færri.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira