Vörukarfa ASÍ lækkar hjá Bónus, Hagkaup og Tíu-ellefu Randver Kári Randversson skrifar 26. júní 2014 16:47 Vísir/Vilhelm
Vörukarfa ASÍ hefur lækkað hjá Bónus, Hagkaupum og Tíu-ellefu á milli verðmælinga verðlagseftirlitsins í apríl og júní. Á þessu tæplega þriggja mánaða tímabili hækkaði vörkarfan hins vegar í verði hjá Krónunni, Nettó, Iceland, Nóatúni, Samkaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax og Víði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Mesta hækkunin er hjá Samkaupum-Strax um 1,4%.Miklar verðsveiflur eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum en mesta hækkunin er í sælgæti hjá Bónus um 6% og mesta lækkunin er í kjötvörum hjá Víði um 8,6%. Eins og fyrr segir var hækkunin mest hjá Samkaupum-Strax (1,4%), Nóatún hækkaði um (0,6%), Iceland (0,5%), Krónan og Víðir um (0,2%), Nettó og Samkaup-Úrval (0,1%), en hjá Hagkaupum lækkaði verð vörukörfunnar um (0,9%) og Tíu-ellefu og Bónus um (1%). Í lágvöruverðsverslununum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Iceland um 0,5%, en mest hækkaði vöruflokkurinn grænmeti og ávextir um (2,1%) og kjötvörur um (1,5%). Hjá Bónus lækkar karfan um 1%, vegna mikillar lækkunar kjötvörum (5,4%) og ýmsum matvörum um (2,7%), en á móti hækkaði vöruflokkurinn sætindi um (6%) og grænmeti og ávextir um (2,8%). Í stórmörkuðum og klukkubúðum skýrist hækkunin hjá Samkaupum-Strax einkum af hækkunum á grænmeti og ávöxtum (4,7%) og sætindum (4,4%) en brauð og kornvörur, kjötvörur og hreinlætis- og snyrtivörur hafa ekki breyst í verði milli mælinga. Hjá Nóatúni var mesta hækkunin á sætindum (2,7%) og kjötvörum (2,1%). Hjá Víði hækkaði vöruflokkurinn sætindi um (4%) en mikil lækkun var á kjötvörum (8,6%). Hjá Samkaupum-Úrval hækkuðu grænmeti og ávextir um (5,1%) en mest lækkuðu mjólkurvörur (1,9%). Verð vörukörfunnar hefur lækkað í verði hjá Hagkaupum um 0,9% en mesta lækkunin var á drykkjarvörum um (4,7%), vöruflokknum ýmsum matvörum um (3,8%) og hreinlætis-og snyrtivörum um (3,2%). Verðið á vörukörfunni í Tíu-ellefu hefur lækkað um 1%, mesta lækkunin var í hreinlætis-og snyrtivörum (3,2%) og grænmeti og ávöxtum (2,5%). Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.
Mest lesið Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Sjá meira