Hundrað prósent niðurfærsla krónueigna dugar ekki Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. apríl 2014 18:29 Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Már hefur ásamt fleirum nefnt að slitabú föllnu bankanna þurfi að færa krónueignir sínar niður um allt að 75 prósent. Nú er rætt um 100 prósent niðurfærslu.
Allar sviðsmyndir sem teiknaðar hafa verið upp í óbirtri greiðslujafnaðargreiningu Íslands eru neikvæðar fyrir þjóðarbúið samkvæmt heimildum Stöðvar 2. Ein sviðsmyndin gerir ráð fyrir að þrotabú föllnu bankanna afhendi allar krónueignir sínar, þar á meðal eignarhluti í Arion banka og Íslandsbanka, gegn því að taka erlendan gjaldeyri framhjá höftum. Sérfræðingar Seðlabankans hafa síðustu mánuði unnið sérstaka greiningu á greiðslujöfnuði Íslands, svokölluðu "balance of payments." Þetta líkan gefur Seðlabankanum gleggri mynd af áhættunni sem fylgir nauðasamningum föllnu bankanna. Ef það vantar gjaldeyri samkvæmt greiðslujöfnuði þá fer gjaldeyrir af forðanum, en um er að ræða greiningu á stöðu þjóðarbúsins gegnum greiðslujöfnuð.Ósjálfbær skuldastaða þjóðarbúsins Háar afborganir í erlendri mynt, bæði hjá ríkissjóði og einkaaðilum, eru á gjalddaga á árunum eftir 2016 og ekki liggur nákvæmlega fyrir hvaðan gjaldeyrir í þessar afborganir á að koma. Gjaldeyristekjur íslenskra fyrirtækja standa í raun ekki undir þessu þrátt fyrir að viðskiptajöfnuður við útlönd hafi verið jákvæður síðustu ár. Þá þarf að hafa hugfast að Ísland greiðir mikið í vexti og arð til erlendra aðila sem sogar til sín stóran hluta þess gjaldeyris sem afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum skapar. Erlend skuldastaða þjóðarbúsins er í raun ekki sjálfbær. Sjá nánari umfjöllun um ósjálfbærni skuldastöðunnar á vef greiningar Landsbankans hér. Öll slitabú föllnu bankanna, Kaupþings, Glitnis og Landsbankans, hafa óskað eftir undanþágum hjá Seðlabankanum vegna útgreiðslu á erlendum gjaldeyri til kröfuhafa. Hjá Kaupþingi og Glitni er slík undanþága forsenda þess að hægt sé að greiða atkvæði um nauðasamninga þessara banka. Til stóð að svara erindum þegar vinnu við greiðslujöfnuð væri lokið. Núna liggur þessi greining fyrir.Þrjár sviðsmyndir Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þrjár sviðsmyndir teiknaðar upp varðandi áhrif uppgjöra þrotabúa föllnu bankanna á greiðslujöfnuð landsins. Samkvæmt þeim öllum er niðurstaðan neikvæð fyrir erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins, þ.e. sama hvaða leið verði farin varðandi uppgjör þrotabúa föllnu bankanna, alltaf sé niðurstaðan sú að ekki verði til gjaldeyrir í landinu til að mæta afborgunum lána í erlendri mynt sem falla á gjalddaga eftir árið 2016. Seðlabankinn áætlar að í október 2012 hafi gömlu bankarnir átt krónueignir að verðmæti 460 milljarða króna. Verðmæti eignarhlutar í nýju bönkunum er um helmingur þeirrar upphæðar. Sú sviðsmynd sem er talin vera best fyrir kröfuhafana (nefnd "best case scenario") felur í sér að þeir afhendi allar krónueignir sínar, en þar á meðal eru eignarhlutir í bæði Arion banka og Íslandsbanka, gegn því að taka stærstan hluta erlends gjaldeyris úr landi. Um er að ræða 100 prósent niðurfærslu krónueigna og gengur því talsvert lengra en sú 75 prósenta niðurfærsla sem seðlabankastjóri og fleiri hafa nefnt. Þetta þýddi að eignarhlutir í Arion banka og Íslandsbanka rynnu inn í Eignasafn Seðlabanka Íslands.Tæki til að kortleggja stöðuna Greiningin hefur ekki verið birt opinberlega og þá hefur fjármálaráðuneytið aðeins fengið kynningu á niðurstöðunum en ekki eintak af gögnum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu verður þessi greining notuð sem tæki til að kortleggja hversu miklum gjaldeyri sé forsvaranlegt að hleypa framhjá fjármagnshöftum með útgreiðslum til kröfuhafa.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Sjá meira