Viðskipti innlent

Fjórtán markmið samfélagsábyrgðar gerð opinber

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Árið 2011 setti Landsvirkjun sér stefnu um samfélagslega ábyrgð.
Árið 2011 setti Landsvirkjun sér stefnu um samfélagslega ábyrgð. Vísir/Vilhelm
Landsvirkjun hefur birt markmið fyrirtækisins fyrir árið 2014 í tengslum við stefnu um samfélagsábyrgð og opnar nýtt vefsvæði samfélagsábyrgðar á www.landsvirkjun.is.

Samfélagsábyrgð hefur verið sérstakt forgangsverkefni hjá Landsvirkjun árið 2013 þar sem unnið hefur verið að innleiðingu á stefnu fyrirtækisins um samfélagsábyrgð.

Afraksturinn er nú gerður opinber með birtingu fjórtán markmiða sem fyrirtækið ætlar að uppfylla á árinu 2014. Markmiðasetningin og afrakstur hennar verður framvegis hluti af árlegri upplýsingagjöf fyrirtækisins og er aðgengileg öllum hagsmunaaðilum á vef fyrirtækisins.

Markmiðin fjórtán fyrir árið 2014 eru:
·         Innleiða UN Global Compact í starfsemi Landsvirkjunar
·         Greina fjölnýtingartækifæri jarðvarma og aukna nýtingu vatnsafls
·         Halda í það minnsta fimm opna fundi með hagsmunaaðilum
·         Auka hlutfall kvenkyns stjórnenda hjá fyrirtækinu
·         Stuðla að nýsköpun í orkugeiranum með stuðningi við orkusprota
·         Gera heildstæða aðgerðaáætlun um bindingu og losun gróðurhúsalofttegunda
·         Koma á samgöngustefnu og þróa áfram orkuskipti í samgöngum
·         Greiða arð til eigenda
·         Starfsemi Landsvirkjunar sé slysalaus
·         Semja og innleiða stefnu um heilindi í viðskiptum
·         Stuðla að þekkingarsköpun í gegnum Orkurannsóknasjóð Landsvirkjunar
·         Innleiða eigendastefnu í starfsemina
·         Gera rannsóknarskýrslur aðgengilegar á www.gegnir.is 
·         Innleiða siðareglur fyrir birgja og þjónustuaðila


Markmiðin eru skilgreind innan sex áherslusviða samfélagsábyrgðar hjá Landsvirkjun en þau eru: ábyrgir starfs- og stjórnarhættir, umhverfismál, ábyrgð í virðiskeðjunni, samfélagið, mannauðurinn og miðlun þekkingar.

Árleg markmiðasetning eykur gagnsæi
Árið 2011 setti Landsvirkjun sér stefnu um samfélagslega ábyrgð. Hún er að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins.

„Með árlegri markmiðasetningu sem við birtum opinberlega, viljum við tryggja að stefnumörkun okkar um samfélagsábyrgð sé framfylgt. Markmiðin eru öllum opin og geta hagsmunaaðilar fylgst með því hvernig okkur tekst að uppfylla þau á árinu 2014,“ segir Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Þessi nýbreytni í upplýsingagjöf miðar að því að gera starfsemi fyrirtækisins gagnsærri og aðgengilegri fyrir hagsmunaaðila Landsvirkjunar.


Markmið samfélagsábyrgðar er að hámarka jákvæð áhrif fyrirtækisins á samfélag og umhverfi og lágmarka neikvæð áhrif. Í tilkynningu frá Landsvirkjuns egir að með þessu móti stígi fyrirtækið jafnframt skref í að jafna áherslur umhverfis, samfélags og efnahags í starfseminni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×