80 milljarðar í glataðar gjaldeyristekjur Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 12. mars 2014 07:00 Vísir/Pjetur
Viðskiptaráð telur að fjármagnshöftin hafi dregið úr vexti útflutnings innan alþjóðageirans á Íslandi um allt að 80 milljarða króna árið 2013. Sú upphæð jafngildir um einni milljón króna í gjaldeyri á hverja fjölskyldu landsins. Viðskiptaráð segir að þessi fórnarkostnaður muni vaxa ár hvert með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á lífskjör í landinu. „Kostnaður af höftunum er fyrst og fremst óbeinn eða fórnarkostnaður. Það er það sem við erum að reyna að setja einhvers konar mælistiku á í þessari skoðun og það er alltaf í einhverjum skilningi minna aðkallandi að fara í aðgerðir þegar menn eru að verða af einhverjum gæðum sem gætu orðið frekar heldur en þegar menn verða af einhverjum gæðum sem þegar eru til staðar,“ segir Frosti Ólafsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viðskiptaráð segir að tekist hafi að útfæra höftin á þann veg að þau raski daglegu lífi einstaklinga lítið. Íslendingar hafi til að mynda enn frelsi til að kaupa og selja erlendar vörur og þjónustu, flytja fjármuni út vegna náms erlendis og nota greiðslukort í útlöndum. Þetta sé jákvætt, en hafi þær hliðarverkanir að afnám hafta verði síður knýjandi.Frosti ÓlafssonViðskiptaráð skiptir kostnaði vegna gjaldeyrishaftanna í beinan kostnað vegna umsýslu og óbeinan vegna efnahagslegra áhrifa. Sá beini, í formi eftirlits, útboða, undanþágubeiðna, ráðgjafar og annarrar umsýslu vegna haftanna sé umtalsverður. Sá sé þó lágur í samanburði við þann óbeina sem hlýst af höftunum í formi minni nýliðunar og hægari vaxtar fyrirtækja í alþjóðageiranum. Það sé erfitt að mæla töpuð tækifæri, en þróun síðustu ára gefur engu að síður vísbendingar um þann skaða sem höft á fjármagnsflutningum hafa valdið innan alþjóðageirans. Þegar flæði fjármagns til og frá landinu var frjálst jókst útflutningur alþjóðageirans hratt, eða um átta prósent að meðaltali yfir fimmtán ára tímabil. Bæði fyrir og eftir þann tíma, þegar höft voru á flæði fjármagns, varð aftur á móti stöðnun og jafnvel samdráttur í útflutningi geirans. Ef útflutningur fyrirtækja í alþjóðageiranum hefði vaxið með óbreyttum hraða frá 2008 til 2013 væri hann um 160 milljörðum hærri á síðasta ári heldur en raunin varð. „Það liggur fyrir að til þess að við getum vaxið með krafti til lengri tíma þá þarf útflutningur að vaxa í takt við hagkerfið. Alþjóðageirinn er sá hluti útflutnings sem er ekki bundinn vaxtarskorðum, þá tengt nýtingu náttúruauðlinda. Það er í samhengi við þetta að við viljum meina að það vegi að framtíðarlífskjörum í landinu ef tækifæri alþjóðageirans til að vaxa og dafna eru skert með þessu hætti. Ef horft er lengra fram á veginn þá þurfum við í vaxandi mæli að byggja útflutninginn á greinum sem ekki eru bundnar náttúruauðlindunum með beinum hætti og það er þar sem að höftin sverfa verulega að,“ segir Frosti.
Mest lesið Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira