Segja tugmilljarða ábata verða af flutningi Reykjavíkurflugvallar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 12. mars 2014 12:00 Íbúar á höfuðborgar- svæðinu fá mikinn ábata af því að færa flugvöllinn. Íbúar landsbyggðarinnar verða hins vegar fyrir miklum kostnaði af flutningi flugvallarins. Fréttablaðið/Vilhelm
Um 45 milljarða króna ábati er af því að flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri á Hólmsheiði eða til Keflavíkur. Þetta kemur fram í hagrænni úttekt Capacent á framtíðarstaðsetningu flugvallarins sem fór í sérmat á samfélagslegri arðsemi af flutningi flugvallarins úr Vatnsmýri á Hólmsheiði, Löngusker eða til Keflavíkur. Flutningur til Keflavíkur er metinn hagkvæmari en flutningur á Hólmsheiði og rúmlega 10 milljörðum króna hagkvæmari en flutningur á Löngusker. Í niðurstöðum Capacent um samfélagslega arðsemi flutningsins segir að þær séu afdráttarlausar og ekki næmar fyrir breytingum á forsendum. Stærsti einstaki áhrifaþátturinn í greiningunni er mat á virði Vatnsmýrarinnar ef flugvöllurinn fer. Þannig er virðið metið út frá ábata íbúa höfuðborgarsvæðisins við minni akstur vegna uppbyggingar blandaðrar byggðar í Vatnsmýrinni frekar en í úthverfum borgarinnar. Ábatinn er reiknaður út frá minni tíma sem varið er í akstur og minni rekstrarkostnað bíla vegna styttri akstursvegalengda, ásamt öðrum þáttum tengdum mengun og slysum. Ef litið er til annarra áhrifaþátta en verðmætis Vatnsmýrarinnar og þeir lagðir saman, verður kostnaður við flutning flugvallarins hærri en ábatinn. Ábatinn af því að nýta Vatnsmýrina undir byggð er hins vegar margfalt meiri en sem nemur þessum kostnaði. Þessir áhrifaþættir hafa áhrif á innbyrðis niðurröðun valkostanna við að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Byggingarkostnaður flugvallar er mun meiri á Hólmsheiði og Lönguskerjum en í Keflavík þar sem starfræktur er alþjóðaflugvöllur. Gerð landfyllinga á Lönguskerjum er ástæða þess að óhagkvæmara er að flytja flugvöllinn þangað frekar en á Hólmsheiði. Rekstrarkostnaður innanlandsflugvallar er metinn mun minni í Keflavík en á öðrum stöðum. Á móti kemur aukinn kostnaður vegna aksturs til og frá flugvelli. Kostnaði og ábata er skipt niður á milli hagsmunaaðila. Flutningur flugvallarins skilar tugmilljarða króna ábata fyrir íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar verða íbúar landsbyggðarinnar fyrir miklum kostnaði fari flugvöllurinn til Keflavíkur vegna ferða til og frá flugvelli. Á móti nýtur ríkið samlegðar vegna reksturs flugvallarins við hlið millilandaflugvallar. Úttektin er unnin á grundvelli skýrslu ParX viðskiptaráðgjafar IBM sem var unnin fyrir nefnd á vegum samgönguráðuneytisins um úttektir á Reykjavíkurflugvelli. Í nefndinni sátu fulltrúar Reykjavíkurborgar og ráðuneytisins. Hún kom út árið 2007 og við gerð hennar var haft samráð við nefndina og helstu hagsmunaaðila um val á aðferðafræði og ákvörðun á helstu forsendum. Kostnaðar- og ábatagreiningin felur í sér að metinn er kostnaður og ábati umfram grunnkost (óbreytt ástand) sem leiðir af því að flytja flugvöllinn á aðra staði.
Mest lesið Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Viðskipti innlent Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Viðskipti innlent Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Verða ekki Framúrskarandi nema uppfylla lög um kynjahlutfall Framúrskarandi fyrirtæki Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Fleiri fréttir Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Sjá meira