Deilt á skuldalækkunarfrumvarp Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 14. maí 2014 05:00 Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu verðtryggðra fasteignalána fær misjafna dóma. Visir/GVA „
Stórir hópar munu ekki njóta gjafa- og örlætisgerninga frumvarpsins. Ber þar fyrst að nefna leigjendur en 25 prósent allra heimila eru í leiguíbúð,“ segir Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki, sem skilaði séráliti í efnahags- og viðskiptanefnd um frumvarp ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaverðlána. Pétur segir að staða leigjenda sé oft mjög slæm því til viðbótar leigu, sem er oftast verðtryggð, komi skortur á leiguíbúðum. Hann segir að þeir sem búa í skuldlausri íbúð, líklega 20 prósent heimila og oft eldra fólk, fái ekki neitt. Í efnahags- og viðskiptanefnd voru skrifuð fimm álit um frumvarpið, eitt frá stjórnarmeirihlutanum í nefndinni og fjögur frá minnihlutanum. Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vegsamar frumvarpið. Meirihlutinn segir að með því sé komið til móts við heimilin í landinu með almennum aðgerðum sem ná fram höfuðstólslækkun verðtryggðra lána án þess að fórna sjálfbærni og stöðugleika við stjórnun ríkisfjármála. Í minnihlutaálitunum er það rauður þráður að í frumvarpinu felist mismunun og að þeir betur stæðu hagnist á skuldaniðurfellingunum. Þá er bent á að úrræðin nái hvorki til námslána, leigjenda né búseturéttarhafa. „Út frá mörgum hliðum felst í raun pínlegt óréttlæti í því að aðgerðirnar taki einungis til þeirra sem skuldað hafa vegna húsnæðiskaupa á vissu tímabili,“ segir Guðmundur Steingrímsson, Bjartri framtíð, og veltir upp þeirri spurningu hvort það væri ekki réttlátara að ríkissjóður léti hverjum og einum Íslendingi í té vissa upphæð. Steingrímur J. Sigfússon, VG, kallar frumvarpið móður allra kosningaloforða. Hann segir ljóst að samfélagsleg áhrif boðaðrar niðurfærslu séu til þess fallin að styrkja hag hinna betur megandi. „Notkun almannafjár í því skyni og í þeim mæli sem áformað er verður að teljast öldungis fráleit,“ segir Steingrímur. Árni Páll Árnason, Samfylkingu, segir að frumvarpið feli í sér flutning á peningum frá þeim tekjuminni og meðaltekjufólki til þeirra ríkari, frá ungu fólki og öldruðu fólki til fólks á besta aldri og frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira