Breytingar á yfirstjórn Actavis Stefán Árni Pálsson skrifar 14. maí 2014 13:14 visir/AFP.
Í dag var tilkynnt um breytingar á yfirstjórn Actavis plc, móðurfélags Actavis á Íslandi, sem verða í kjölfar yfirtöku á frumlyfjafyrirtækinu Forest Laboratories Inc en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Actavis tilkynnti í febrúar síðastliðinn um kaup félagsins á Forest Laboratories fyrir 25 milljarða Bandaríkjadala. Kaupin styrkja stöðu Actavis enn frekar sem leiðandi alhliða lyfjafyrirtæki með 15 milljarða dala veltu sem mun skiptast jafnt á milli frumlyfja og samheitalyfja. Gert er ráð fyrir að kaupin gangi í gegn í byrjun júlí á þessu ári. Paul Bisaro lætur af störfum sem forstjóri Actavis plc en verður starfandi stjórnarformaður félagsins. Brent Saunders, núverandi forstjóri Forest, tekur við sem forstjóri Actavis að samrunanum loknum og mun leiða framkvæmdastjórn sem staðsett verður í New Jersey í Bandaríkjunum. Hann mun einnig taka sæti í stjórn félagsins. Jafnframt hefur Sigurður Óli Ólafsson, forstjóri Actavis Pharma, sem er alþjóðleg sölueining samheita- og sérlyfja félagsins ákveðið að láta af störfum, en hann gekk til liðs við Watson, forvera Actavis, árið 2010. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá fyrirtækinu í kjölfar þessara breytinga. Guðbjörg Edda sat í framkvæmdastjórn Actavis um langt skeið, allt þar til fyrirtækið var keypt af Watson árið 2012. Hún var m.a. aðstoðarforstjóri samstæðunnar á árunum 2008-2010 og tók svo við starfi forstjóra Actavis á Íslandi haustið 2010. Í tilkynningu frá Actavis eru Guðbjörgu Eddu þökkuð afar farsæl störf í þágu félagsins, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki í vexti og framgangi fyrirtækisins í yfir 30 ár, bæði hér á Íslandi og alþjóðlega. „Að vel athuguðu máli komst ég að þeirri niðurstöðu að þetta væri heppilegur tími til að stíga til hliðar og mun ég því láta af störfum hjá Actavis 1. júlí. Þetta var ekki auðveld ákvörðun, því ég hef starfað hjá fyrirtækinu í meira en 30 ár og hef notið þess að vinna með því frábæra fólki sem starfar hjá Actavis,“ segir Guðbjörg Edda. Þegar Guðbjörg Edda lætur af störfum mun Valur Ragnarsson verða í forsvari fyrir sameiginlega starfsemi Actavis á Íslandi, samhliða starfi sínu sem forstjóri Medis. Medis er eitt af dótturfyrirtækjum Actavis plc og annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti fyrir samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja. Hjá Medis starfa um 100 starfsmenn á Íslandi og erlendis. Velta Medis er um 35 milljarðar ISK á ári og meðal viðskiptavina Medis eru öll stærstu samheitalyfjafyrirtæki heims.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira