Viðskipti innlent

Fasteignamarkaður á Akureyri þróast eins og á höfuðborgarsvæðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir/auðunn
Þróun fasteignaverðs á Akureyri hefur í stórum dráttum verið svipuð og á höfuðborgarsvæðinu síðustu 5 ár en þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Verð á Akureyri náði botni strax í upphafi árs 2009 og hefur hækkað nokkuð stöðugt síðan. Botninn kom mun seinna á höfuðborgarsvæðinu og verð héldust lág nokkuð lengi.

Verð sérbýlis hefur greinilega hækkað mun meira á Akureyri en á höfuðborgarsvæðinu á þessum tíma og verðþróun fjölbýlis er svipuð.

Fermetraverð í viðskiptum með fjölbýli á Akureyri var um 70% af meðalfermetraverði í Reykjavík í árslok 2013 og um 80% af meðalverði í Kópavogi og Hafnarfirði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×