Vildu lækka laun bæjarstjórans í Hveragerði í milljón á mánuði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. júlí 2014 22:25 Aldís Hafsteinsdóttir.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, fær 1,1 milljón króna í mánaðarlaun næstu fjögur árin. Hún var áður með 1.050 þúsund krónur í mánaðarlaun. Þá heldur hún bifreiðastyrk upp á 1300 km á mánuði. Meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans um að lækka laun bæjarstjórans á fundi bæjarráðs í síðustu viku. Sunnlenska greindi fyrst frá. Njörður Sigurðsson, fulltrúi Samfylkingar í bæjarráði, lagði fram breytingartillöguna. Stærstu tillögurnar voru lækkun mánaðarlauna um 50 þúsund krónur auk þess sem lagt var til að bæjarstjórinn fengi bifreiðastyrk í samræmi við akstursbók. Rökstuðningur minnihlutans fólst í því að laun framkvæmdastjóra sveitarfélaga af svipaðri stærð og Hveragerði væri 975 - 1074 þúsund krónur á mánuði. Lægstu laun væru 800-899 þúsund en hæstu 1100-1199 þúsund á mánuði. Var vísað í önnun Sambands íslenskra sveitarfélaga. „Launakjör skv. framlögðum ráðningasamningi við bæjarstjóra í Hveragerði er því í hæsta lagi og yfir meðaltali. Því er lagt til að föst laun bæjarstjóra sem tilgreind eru í 4. gr. samningsins endurspegli meðaltalskjör framkvæmdastjóra sveitarfélaga að svipaðri stærð og Hveragerði,“ segir í greinargerð með tillögunni. Þá var bent á að 1300 km akstur svaraði til þess að bæjarstjóri keyrði allar götur í Hveragerði 50 sinnum í mánuði. Þá væri óeðlilegt að bæjarstjóri fengi bifreiðastyrk í sumarleyfi og á biðlaunum eins og sé tilgreint í ráðningarsamningnum. Fleiri breytingartillögur á ráðningarsamningnum voru gerðar svo sem varðandi uppsögn samningsins og afgerandi orðalag þess efnis að ekki yrði greitt fyrir yfirvinnu. Meirihlutinn felldi allar tillögur minnihlutans. Aldís hefur gegnt stöðu bæjarstjóra í Hveragerði fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2006.
Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira